Fösssssstudagur
13. - 17. janúar
Vikan hefur gengið afskaplega vel fyrir sig.
Við rifjuðum upp hvernig jákvæður agi virkar og fóru allir umsjónarhópar í ýmiskonar hugleiðingar og æfingar í anda jákvæðs aga.
Kynfræðslan í 9. bekk klárast á mánudaginn í næstu viku :)
Við munum klára að lestrarprófa nemendur í næstu viku og viljum því nýta tækifærið og minna á mikilvægi þess að lesa heima. Allir nemendur eiga nú að vera komnir með yndislestrarbók og er lestrarskipulag inn á classroom-inu þeirra.
- Helstu hlutverk heimila í læsisnámi barna og unglinga er að bjóða upp á lestrarhvetjandi umhverfi þar sem þjálfun barnanna í að efla læsi í sinni víðustu mynd fer fram og tryggja það að börnin hafi gott aðgengi að lesefni. Lykillinn https://lykillinn.akmennt.is/
Foreldrasamtölin eru 27.- og 28. janúar. Við opnum fyrir skráningu í dag 17. janúar :)