HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 30. TBL
DAGSKRÁ 21. MAÍ - 27. MAÍ
MÁNUDAGUR 21. MAÍ
Annar í hvítasunnu - frídagur
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ
Vorskóli 5. ára nemenda kl. 13:15 - 15:00
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ
Vorskóli 5. ára nemenda kl. 13:15 - 15:00
Starfsmannafundur í Hs kl. 15:00, mælum til þess að allir sem geta mæti á fundinn - Erlingur fer yfir skólapúls og fl.
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ
Stjórnendur verða á fundi með Skólastjórafélagi Suðurlands frá kl. 13:00 - 16:00
Heimsókn frá skólaskrifstofu Rangeyjarsýslu
4. bekkur í heimsókn í Barnaskólann kl. 11:20
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ
Skólastjórnendur á Suðurlandi heimsækja skólann
Gott að fara yfir Vinnustund.
Góða helgi,
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Skólastjórafélag Suðurlands verður með fund í Eyjum 24. - 25. maí. Hópurinn heimsækir skólann föstudaginn 25. maí.
- Erasmushópur í heimsókn hjá okkur dagana 27. maí - 1. júní.
- Sænskur kennari í hópnum verður með námskeið fyrir þá kennara sem kenna eða eru með nemendur sem hafa íslensku sem annað tungumál, tvítyngi. Námskeiðið verður eftir hádegi í 1 - 2 tíma, tímasetning auglýst síðar.
Föstudaginn 1. júní verða nemendur í 10. bekk með sýningu á lokaverkefnum í sal Bs. Opið hús frá kl. 9:00 -12:00.
Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk verða 1. og 4. júní
5. júní: Útskrift hjá 10. bekk kl.17:00 í Höllinni, starfsfólk velkomið á útskriftina.
6. júní: Skólaslit hjá 1. - 9. bekk.
Föstudaginn 8. júní er fyrirhuguð skemmti-og fræðsluferð um Suðurlandið á vegum Starfsmannafélags GRV. Skráningablöð komin á kaffistofu
Tilkynningar !!
- Námsgögn - Næsta skólaár greiðir Vestmannaeyjabær fyrir öll skólagögn nemenda frá 1. - 10. bekk. Við höldum áfram að vera aðhaldssöm og geymum allar hálfkláraðar bækur á milli ára.
- Umsjónakennarar eru beðnir um að skila inn pöntunum á námsgögnum (stílabækur, skriffæri, skæri, liti ofl.) fyrir næsta skólaár til deildastjóra.
- Bókapantanir - minnum kennara að skila inn bókapöntunum fyrir næsta skólaár.
- Námsmat í skólanum. Öllu námsmati á að vera lokið, allt námsmat á að vera komið inn á Mentor fyrir 28. maí.
- Fimmtudagurinn 31. maí - Þessi dagur er hluti af Erasmus+ verkefninu SAY NO! sem er gegn útlendingahatri og kynþáttafordómum. Ætlunin er að allur skólinn taki þátt á einn eða annan hátt og helst allt samfélagið .
- Við biðjum allt starfsfólk að yfirfara Vinnustundina vikulega. Gott að gera áður en farið er í helgarfrí.
- Allt starfsfólk þarf að skrifa undir persónuverndarskjöl frá mentor. Mappan verður inná kaffistofu í sitthvoru húsinu.
Fjölgreindaleikar 1. og 4. júní
- Fjölgreindarleikar á mið- og yngsta stigi verða dagana 1. júní og 4. júní
- Kennurum á mið- og yngsta stigi verður skipt í tvo hópa sem stöðvastjórar, annar hópurinn sér um stöðvar í Íþróttahúsi og hinn í Hamarsskóla.
- Stöðvastjórar útbúa stöðvalýsingu og setja inn á K-drifiið - Fjölgreindaleikar/ Fjölgreindaleikar 2018 - stövar 2018 - Íþróttahús eða Hamarsskóli.
- Stöðvarnar verða 32 þ.e 16 stöðvar í Íþróttahúsi og 16 stöðvar í Hamarsskóla.
- Nemendum skipt í 32 hópa þar sem nemendur í 7. bekk eru fyrirliðar.
- Starfsfólki skólans sem mun taka þátt í leikunum er bent á að horfa á vídeó frá síðustu leikum til upprifjunar.
- https://www.facebook.com/grunnskolivestmannaeyja/videos/474742106067214/
GRV fræðsla á facebook
Spakmæli vikunnar
"Ekkert sem þú klæðist er mikilvægara en brosið þitt"
Connie Stevens
Hvítur dagur til stuðnings ÍBV
Starfsmannafélagið á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.