Stiklur
Með frábæru samstarfsfólki #teamNesskóli
Fjármálalæsi
Bókasafnið
Bókasafnið verður lokað nemendum.
Starfsmenn skóla hafa takmarkaðan aðgang í samráði við Böddu forstöðumann safnsins.
Bókasafnið í Neskaupstað verður opið almenningi frá 17 – 19 á þriðjudögum.
Nýr starfsmaður
Fundahöld...
Leyfisbréf
Upplýsingatækni
Ég hvet ykkur til að skrá ykkur t.d. í eftirtalda Facebook hópa:
Google í skólastarfi
Skólaumbótaspjallið
Kennsluráðgjöf
Spjaldtölvur í námi og kennslu
Upplýsingatækni í skólastarfi
Allt frábærir hópar...alveg stútfullir af nytsamlegu efni... :)
Myndmennt og íþróttir
Vinnustund
Hér eru nokkur atriði frá launadeildinni varðandi Vinnstund og Covid skráningar.
Ef þið vinnið umfram vinnuskylduna ykkar skrá það.
Stimpla sig inn þegar þið komið...og út þegar þið farið.... þó það stemmi ekki við vinnuskilgreiningu.
Vegna ráðstafana í sóttvörnum sem þarf að grípa til og fyrirliggjandi áforma ríkisvaldsins um framlög til launagreiðenda vegna COVID-19 faraldursins er nauðsynlegt að halda utan um fjarverur starfsmanna svo hægt sé að afla upplýsinga um kostnað.
Bið ykkur um að skrá eftirfarandi í vinnustund vegna ráðstafana og fjarveru.
- Starfsfólk sem fer í sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda eða yfirmanna skv. viðbragðsáætlun sveitarfélagsins og leggur fram staðfestingu þess efnis. Starfsmaður skal halda launum og skulu tímar skráðir eftirfarandi í vinnustund:
- Leyfi vegna heilsufars með merkingunni Sóttkví Covid-19.
- Starfsfólk sem fer sjálfskipað í sóttkví. Hafi starfsmaður ekki undirliggjandi sjúkdóma og þ.a.l. ekki vottorð skulu tímar skráðir eftirfarandi í vinnustund:
- Launalaust leyfi eða orlof eftir því hvers starfsmaður óskar.
- Starfsfólk sem fer sjálfskipað í sóttkví vegna undirliggjandi sjúkdóma skulu skila inn læknisvottorði. Skráning í vinnustund er eftirfarandi:
- Veikindi með merkingunni Veikindi Covid 19.
- Veikindi til staðar. Skila skal inn vottorði. Skráning í vinnustund er eftirfarandi;
Veikindi með merkingunni Veikindi Covid 19.