Fréttabréf Garðaskóla
Janúar 2018 - 41. árgangur - 3. tölublað
Í þessu fréttabréfi:
- Pistill skólastjóra
- Valgreinakynningar
- Söngleikurinn Grease
- Sundkennsla hefst í apríl
- Myndin af mér - mál í gangi
- Læsi - nemendur á réttri leið
- Opnun upplýsingavers
- Foreldrafélagið
- Umferð um bílastæði
- Ekki lengur annarskil
- Fjölbreytt skólastarf
- Inna - lesa ástundun
- Nýir starfsmenn
Kæru nemendur, foreldrar og aðrir lesendur
Hafið þið tíma til að staldra örstutt við og pæla aðeins í hversu margt er í gangi í Garðaskóla? Þá eruð þið komin á réttan vef. Í þessu fréttabréfi segjum við örstuttar fréttir af völdum þáttum úr starfinu. Hér bendum við á það sem sést ekki í stundaskránni á hverjum degi en skiptir samt miklu máli.
Þótt fréttir á vefnum hjálpi okkur að fylgjast vel með jafnast þær ekki á við bein samskipti. Við þökkum forráðamönnum góða mætingu á samráðsfundi í janúar og vonum að þeir hafi nýst vel til að meta stöðu mála og setja markmið fyrir starfið framundan. Það er ómetanlegt fyrir okkur starfsfólkið að fá þá endurgjöf sem birtist í samtölum nemenda, forráðamanna og kennara.
Í haust höfum við rætt talsvert um skjátíma og netnotkun unglinga og fullorðinna og hvert við stefnum í þeim efnum. Er mögulegt að sá tími sem við verjum við skjáinn dragi úr beinum samskiptum okkar við annað fólk? Skiptir það máli?
Við hvetjum foreldra áfram til að fylgjast vel með netnotkun barna sinna og byggja upp opin samskipti um það líf sem unglingarnir lifa á vefnum. Við hvetjum foreldra líka til að líta við í Garðaskóla og heimsækja nýtt upplýsingaver sem opnaði í desember. Þar er að skapast frábær aðstaða til lestrar og annars náms, hönnunar- og tölvuvinnu, samveru og notalegheita.
Stöndum saman um gott skólastarf og gott samfélag!
Á fjöllum
Meistarar
Þrívídd
Valgreinakynningar
Söngleikurinn Grease frumsýndur 5. febrúar
Sundkennsla hefst í apríl
Nánar má lesa um endurbætur á aðstöðunni í Ásgarði á vef Garðabæjar.
Myndin af mér - ofbeldi á netinu
Málefnið snertir okkur í Garðaskóla því nokkrir nemendur hafa lent í sambærilegum málum og lýst er í myndinni. Einnig hafa hjá okkur komið upp mál þar sem barnaklám er birt inni í hópum sem nemendur skólans hafa sett upp til að spjalla. Í Garðaskóla er margvísleg fræðsla þar sem við brýnum fyrir nemendum að sýna ábyrga hegðun á netinu. Mikilvægt er að forráðamenn taki í sama streng og fylgist vel með lífi barna sinna á netinu. Við fullorðin megum ekki hnýsast í mál barna okkar, en við eigum að fjárfesta í opnum og góðum samskiptum við unglingana okkar þannig að þeir treysti sér til að deila lífi sínu á netinu með okkur.
Læsi - nemendur á réttri leið
Lesferill var lagður fyrir í september 2017 og janúar 2018 og má sjá skýrar framfarir milli mælinganna. Á myndinni hér að neðan sést hlutfall nemenda sem:
- ná ekki viðmiði aldurshópsins.
- eru á réttri leið miðað við aldurshópinn.
- eru yfir viðmiði aldurshópsins.
Við erum mjög ánægð að sjá þessar framfarir og nemendur eiga hrós skilið fyrir árangurinn. Við heyrum líka hjá nemendum að það hvetur þá áfram þegar þeir sjá línuritið sitt fara upp á við.
Opnun upplýsingavers
Foreldrafélagið
Foreldrar geta fylgst með störfum félagsins á vef skólans og facebook síðu.
Umferðin við skólann
Við viljum benda bílstjórum nemenda á að nýta hringtorgið fyrir framan skólan til að hleypa nemendum út, frekar en að keyra inn á bílastæðin þar sem stíflur myndast mjög auðveldlega.
Ekki lengur annarskil
Fjölbreytt skólastarf
- Þemadagarnir Gagn og gaman voru að venju haldnir snemma í nóvember og afmælishátíð skólans í kjölfarið.
- Jafnréttisþing nemenda var 21. nóvember og gátu nemendur þar sótt fjölbreytta viðburði til að taka þátt í umræðu um mikilvægi fjölbreytileikans í samfélaginu.
- Lið Garðaskóla í First Lego League, sem er forritunar- og verkfræðikeppni grunnskóla, vann Íslandsmótið í nóvember og stóð sig frábærlega í Norðurlandakeppninni í Noregi í byrjun desember. Við óskum Röggu og strákunum enn einu sinni til hamingju.
- Starfamessa, starfskynningar fyrir nemendur, var haldin 13. desember með frábærri þátttöku foreldra.
- Þorgrímur Þráinsson flutti dagskrána "Ástfanginn af lífinu" fyrir 10. bekkinga um miðjan desember.
- Læsishátíðin "jólabókaflóð" var haldin 19. desember og tóku allir nemendur virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum.
Í vor taka nemendur svo þátt í fjölbreyttum forvarnarverkefnum í skólanum. Má þar m.a. nefna:
- Fræðsla Blátt áfram um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi, í 8. bekk í janúar. Við hvetjum foreldra til að lesa meira um verkefni á vef Blátt áfram.
- Jón Jónsson, hagfræðingur og tónlistarmaður flytur dagskrá gegn notkun tóbaks og rafretta í 8. bekk í lok febrúar.
- Tölum saman er kyn- og jafnréttisfræðsla fyrir nemendur í 8. bekk og foreldra þeirra. Við hvetjum foreldra til að fjölmenna á viðburðinn en þeim er boðið til dagskrár í skólanum.
- Skyndihjálparnámskeið verður haldið fyrir nemendur í 10. bekk í vikunni fyrir vetrarfrí. Kennarar eru allir á vegum Rauða krossins.
Inna - Að lesa yfirlit um ástundun
Garðaskóli er einn af örfáum grunnskólum sem notar Innu, en langflestir framhaldsskólar landsins nýta hana. Birting ástundunar er eins og raun ber vitni vegna krafna frá framhaldsskólum. Í Garðaskóla þurfum við að horfa á viðveru nemenda óháð því hvort fjarvera er lögmæt eða ólögmæt. Það hefur alltaf áhrif á námsframvindu nemenda ef þeir geta ekki mætt í tíma, líka þótt skýringin sé veikindi eða leyfi. Því hefur okkur þótt kostur að skráningin sé eins og raun ber vitni í Innu, en viljum að sjálfsögðu að við höfum öll sama skilning á birtingarmyndunum.
Í myndinni hér að neðan eru leiðbeiningar um skráningarnar á ástundunaryfirlitinu og fleiri leiðbeiningar má nálgast á vef skólans: http://gardaskoli.is/hagnytt/inna/leidbeiningar-fyrir-innu/
Nýir starfsmenn í Garðaskóla
Óskar
Tryggvi Már
Andri Rafn
Herborg
Pawel
Hagnýtar upplýsingar á heimasíðu Garðaskóla
Á vefsíðu Garðaskóla eru upplýsingar um starf skólans alltaf aðgengilegar.
Tölvu- og netstefna Garðaskóla og aðgangur nemenda að þráðlausu neti
Garðaskóli
Kl. 7:30-15:00 mán-fim
Kl. 7:30-14:30 fös
Starfsmenn skrifstofu:
Anna María Bjarnadóttir, ritari
Óskar Björnsson, skrifstofustjóri
Email: gardaskoli@gardaskoli.is
Website: www.gardaskoli.is
Phone: 590-2500
Facebook: https://www.facebook.com/Gar%C3%B0ask%C3%B3li-635137559954040/