Skólafréttir Urriðaholtsskóla
Október 2020
Góð samskipti eru og styðja við forvarnir
Október hefur heldur betur verið viðburðaríkur á holtinu. Forvarnarvika er að klárast og við slítum henni með viðburði hérna í húsi á morgun þriðjudag þar sem Þórey Huld aðstoðarskólastjóri leikskólastigs verður með fyrirlestur um Kærleiksrík mörk í uppeldi barna (sjá auglýsingu hér að neðan).
Haustkynningar fóru fram á grunnskólastigi í mánuðinum og gott var að geta boðið foreldrum aftur í heimsókn í skólann og við hlökkum til að að sjá sem flesta leikskólaforeldra í húsi á morgun.
Nemendur í 6. og 7. bekk eru að ljúka könnun í líðan og viðhorfi til skólans sem gefur okkur verkfæri til að rýna skólastarfið frá þeirra sjónarhorni. Við lukum vinnu við ársáætlun skólans sem lögð var fyrir skólaráð sem var samþykkt án athugasemda og hægt er að nálgast hana á vef skólans. Þar má einnig nálgast ársskýrslu síðasta árs sem og skólanámskrá skólans.
Búnaður fyrir bókasafn skólans er að mestu kominn í hús og verið að setja hann saman. Gerum ráð fyrir að fyrstu bækur til útláns á jarðhæð verði fyrir jól. Bygginganefnd vinnur hörðum höndum á að ljúka vinnu sinni við að undirbúa næsta byggingaráfanga en gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á vormánuðum. Áður en þær framkvæmdir hefjast verður ráðist í það að færa tímabundna aðstöðu eldhús í færanlega einingu fyrir utan skólann. Þetta er gert til þess að börn eigi öruggan og greiðan aðgang út á skólalóð eftir að framkvæmdir eru hafnar.
Hér fyrir neðan eru nokkrir fréttamolar, upplýsingar frá aðalfundi foreldrafélagsins, mikilvægar dagsetningar í nóvember, lúsin, lestrarleiðbeiningar og fleira.
Kærleikskveðjur til ykkar frá okkur,
Þorgerður Anna
skólastjóri
Svefn leik- og grunnskólabarna
Aldrei er góð vísa of oft kveðin og allt það. Við minnum á mikilvægi þess að öll börn fái nægan svefn til að hafa forsendur til að takast á við allt það sem upp kemur á hverjum skóladegi. Ef við erum úthvíld eigum við betra með að takast á við verkefnin okkar, samskipti við aðra og okkur líður almennt betur.
Nægur svefn er megin undirstaða líkamlegrar og andlegrar heilsu og þroska allra barna. Of lítill svefn miðað við aldur getur ýtt undir hegðunar- og tilfinningavanda og veikindi og valdið miklu álagi á alla fjölskylduna. Flestir foreldrar upplifa á einhverjum tímapunkti erfiðleika í tengslum við svefntíma og nætursvefn. Slíkir erfiðleikar geta undið hratt upp á sig, sérstaklega ef foreldrar átta sig ekki á hvað ýtir undir frekari svefnvanda og þekkja ekki árangursríkar leiðir til að takast á við vandann. Við bendum á lesefni um efnið, meðal annars þetta https://salstofan.is/lesstofan/.
Dagur eineltis mánudaginn 8. nóvember
Mánudaginn 8. nóvember er dagur eineltis. Þann dag eins og aðra daga munum við í Urriðaholtsskóla setja góð samskipti í fyrsta sæti. Viðfangsefni dagsins er að beina sjónum að því hvað er samskiptavandi, hvað er hægt að gera til að leysa hann, ábyrgð fullorðinna og mikilvægi þess að láta vita til þess að hægt sé að hjálpa. Menntamálastofnun hefur látið útbúa vefsíðu www.gegneinelti.is en þar er gott myndband sem hjálpar okkur að útskýra hvað samskiptavandi er og mikilvægi þess að allir standi saman, nemendur, foreldrar, starfsfólk og tómstundafélög við að leita lausna og vinna saman bæði til að fyrirbyggja vandann og leysa úr honum ef hann kemur upp.
Á síðunni segir:
Það er ekki einfalt að ákveða hvort um einelti sé að ræða þegar samskiptavandi kemur upp. Samskiptavandi birtist á margvíslegan máta og er misalvarlegur. Í mörgum tilfellum geta einstaklingar sjálfir leyst úr málunum og þurfa að fá tækifæri til þess svo samskiptafærni þeirra megi þroskast. Stundum er um misskilning að ræða, stundum verður einstaklingum aðeins of heitt í hamsi eða ákveðinn galsi fer úr böndunum en stundum verður þó til neikvætt mynstur í samskiptum sem einstaklingar geta ekki sjálfir leyst sín á milli og fer að hafa neikvæðar afleiðingar á líðan viðkomandi. Samskiptin geta verið með eða án orða, svo sem að gera lítið úr, móðga, ógna, beita ofbeldi, hunsa, gefa augnaráð eða svip o.fl.
Það má segja að einelti sé alvarlegasta stig samskiptavanda; þegar síendurtekin hegðun er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður og reka eða útskúfa viðkomandi úr samfélagi jafningja.
Þegar upp kemur vandi í samskiptum er mikilvægt að orka og athygli fari ekki eingöngu í að skilgreina hversu alvarlegur vandinn er og hvort um einelti sé að ræða eða ekki. Mikilvægast er að finna farsælar leiðir til að takast á við vandann, skoða umhverfið í heild sinni og gefa öllum aðilum máls tækifæri til að axla ábyrgð á hegðun sinni og breyta til hins betra. Því þegar allt kemur til alls þá er vandinn sá sami, hvaða nafni sem við köllum hann.
Af vef MMS https://gegneinelti.is/hvad-er-einelti/
Klæðum okkur í merkt föt í samræmi við veður
Blær mættur frá Ástralíu
Í vikunni kom bangsinn Blær úr vinuáttuverkefni Barnaheilla loksins formlega til 5 ára barna á Hamri.
Undanfarnar vikur hafa þau verið að undirbúa komu hans og meðal annars útbjó hvert barn hús fyrir sinn bangsa og merkti með nafni. Babb kom þó í bátinn á ferðalagi Blæs frá Ástralíu, en vegna Covid takmarkana varð Blær stopp í Amsterdam. Þá er gott að hafa góð tengsl, og faðir eins nemanda gerði sér lítið fyrir og skutlaðist eftir Blæ. Faðirinn kom beint úr flugi, með fulla ferðatösku af böngsum og öll börn gátu því boðið sínum Blæ bangsa í nýtt heimili
Fréttir af grunnskólastigi
Gagnlegar vefsíður fyrir foreldra sem vilja fræðast meira um stýrða kennslu og fimiþjálfun
DI
https://www.youtube.com/watch?v=num-ZanEz7I&t=914s
https://www.youtube.com/watch?v=zdNwZ-TFtLc
Anita Archer
https://explicitinstruction.org/anita-l-archer-phd/
https://www.youtube.com/watch?v=cKjy6Vmk59c&t=235s
https://www.youtube.com/watch?v=cPeBwbFIOIo
Skemman
Leitarorð: Stýrð kennsla, Bein Kennsla
Höfundar t.d.: Ásta Harðardóttir, Guðrún Adda Ragnarsdóttir, Finna Pálmadóttir (handritið er byggt á vinnu Finnu), Thelma Lind Tryggvadóttir (stærðfræði),
Tímarit um menntarannsóknir
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=6485180
Google scholar
https://scholar.google.is/schhp?hl=en&as_sdt=0,5
Leitarorð: Direct Instruction, Explixit teaching, Precision Teaching
Metaanalýsa frá 2018: http://journals.sagepub.com/doi/abs/10.3102/0034654317751919
Fimi (Precision Teaching)
http://www.morningsideacademy.org/
Mikilvægar dagsetningar í nóvember
- 29. október - Hrekkjavaka, sumir búa til búninga, aðrir koma með að heiman. Gleðin allsráðandi
- 8. nóvember - Baráttudagur gegn einelti
- 16. nóvember - Dagur íslenskrar tungu
- 20. nóvember - Dagur mannréttinda barna
Enn eru lúsin að angra okkur
Höfuðlús (e. head louse) er lítið skordýr sem hefur aðlagað sig manninum og lifir sníkjulífi í hárinu á höfðinu. Hún nærist á því að sjúga blóð úr hársverðinum.
Höfuðlúsin er ekki talin bera neina sjúkdóma og því skaðlaus manninum. Allir geta smitast en algengast er að börn 3–12 ára fái höfuðlús.
Finnist lús í höfði barns er rétt að láta vita í skóla/leikskóla barnsins svo hægt sé að tilkynna foreldrum annarra barna um lúsina og hefta útbreiðslu lúsarinnar.
Smitleiðir
Lúsin fer á milli einstaklinga ef bein snerting verður frá hári til hárs í nægilega langan tíma til að hún geti skriðið á milli en hún getur hvorki stokkið, flogið né synt.
Höfuðlús sem fallið hefur út í umhverfi verður strax löskuð og veikburða og getur þ.a.l. ekki skriðið á annað höfuð og sest þar að. Þess vegna er talið að smit með fatnaði og innanstokksmunum sé afar ólíklegt en ekki er þó hægt að útiloka að greiður, burstar, húfur og þess háttar, sem notað er af fleiri en einum innan stutts tíma, geti hugsanlega borið smit á milli.
Einkenni
Höfuðlús veldur litlum einkennum en lúsin og egg hennar, nit, geta sést í hári. Einn af hverjum þremur fær kláða. Lúsin leggur egg sín á hárið nálægt hársverðinum og festir það við hárið. Þar sem nitin er föst við hárið færist hún frá hársverðinum þegar hárið vex. Nit sem komin er langt frá hársverði er líklega dauð eða tóm. Algengast er að nitin sé fyrir aftan eyru og neðantil í hnakka.
Meðferð
Nauðsynlegt er að kemba til að greina lúsasmit. Nota má kembingu sem meðferð við lús. Ef kembt er samviskusamlega á hverjum degi í 14 daga er tryggt að lúsin er farin úr hárinu.
Lúsadrepandi efni
Efni til að drepa höfuðlús fást í lyfjaverslunum og eru af ýmsum gerðum. Mikilvægt er að fara eftir leiðbeiningum framleiðanda við notkun. Algengt er að meðferðin sé endurtekin eftir um það bil viku.
Blönduð leið
Margir velja að fara blandaða leið í baráttunni við lúsina. Þá er kembing og lúsadrepandi efni notað samhliða. Byrjað er á að kemba og svo er hárið meðhöndlað með lúsadrepandi efni. Daginn eftir er kembt aftur og síðan annan hvern dag í 14 daga. Efnameðferðin endurtekin samkvæmt leiðbeiningum.
Sjá frekari upplýsingar á t.d. https://www.landlaeknir.is/smit-og-sottvarnir/smitsjukdomar/sjukdomur/item12489/Hofudlus-(Pediculus-humanus-capitis) og
https://www.heilsuvera.is/markhopar/sjukdomar-fravik-einkenni/hofudlus/
Aðalfundur foreldrafélags Urriðaholtsskóla - fundargerð
Okkur í stjórn foreldrafélagsins langar að þakka fyrir góðan aðalfund.
Meðfylgjandi eru glærur frá fundinum og ársreikningurinn.
Við óskum eftir aðila til að taka annað af tveim sætum í Grunnstoð
(https://www.gardabaer.is/ibuar/skolar-og-daggaesla/grunnskolar/grunnstod-gardabaejar/).
Einnig vantar a.m.k. eitt foreldri í viðbót af miðstigi sem heimasvæðafulltrúa (bekkjarfulltrúa) Hvetjum áhugasama til að setja ykkur í samband við umsjónarkennarana á miðstigi eða okkur varðandi þetta.
Fyrir þá sem ekki komust á fundinn þá eru hér fundargerðin:
Farið var yfir skýrslu stjórnar fyrir veturinn 2020-2021, þá viðburði sem fóru fram og þau
verkefni sem tekin voru fyrir síðast liðinn vetur af foreldrafélaginu. Sjá punkta í
glærunum.
Farið var yfir ársreikninga og fjárhagsstöðu foreldrafélagsins
Óskað eftir aðilum í stjórn foreldrafélagsins og eftirfarandi aðilar eru í stjórn félagsins
næstkomandi vetur:
- Guðrún Ólafsdóttir - foreldri á leikskólastigi
- Hrönn Kristinsdóttir - foreldri á leikskólastigi
- Rakel Sigurjónsdóttir - foreldri á leik- og grunnskólastigi
- Sara Lind Guðbergsdóttir - foreldri á leikskólastigi
- Sigríður Rún Siggeirsdóttir - foreldri á leik- og grunnskólastigi
- Þórunn Ívarsdóttir - foreldri á leikskólastigi
- Margrét Írena Ágústsdóttir - aukameðlimur í stjórn - foreldri á leik- og
- grunnskólastigi
Óskað eftir aðilum í Grunnstoð:
- Rakel Sigurjónsdóttir tekur annað sæti
- Auglýst meðal þeirra sem ekki mættu varðandi hitt sætið
Heimasvæðafulltrúamál leyst fyrir öll heimasvæði nema fyrir miðstigið og því auglýst eftir
amk einu foreldri í viðbót sem heimasvæðafulltrúa þar.
Farið yfir verkefnin sem framundan eru í vetur
Önnur mál
- Upp kom spurning varðandi leiklist fyrir nemendur skólans sem væri þá í boði ífrítíma. Þorgerður skólastjóri benti á Klifið varðandi þetta og foreldrafélagið tekurþennan bolta og kannar málið.
- Umræður um stækkun skólans og ýmislegt tengt hverfinu.
- Þorgerður kynnti svo fyrir okkur nemendastöðuna og stöðuna á byggingu næsta áfanga skólans.
Við minnum á tölvupóstfang foreldrafélagsins foreldrafelagurridaholtsskola@gmail.com
Stjórn Foreldrafélags Urriðaholtsskóla
URRIÐAHOLTSSKÓLI ER HNETULAUS SKÓLI
Urriðaholtsskóli
Email: urridaholtsskoli@urridaholtsskoli.is
Website: urridaholtsskoli.is
Location: Vinastræti 1-3, 210 Garðabæ
Phone: 591-9500