Föstudagsfréttir
Vikan 27.-31.janúar
Vikusamantekt
Við viljum byrja á því að þakka fyrir góð foreldraviðtöl - alltaf gott að setjast niður og spjalla saman um námið og líðan ;)
Nú er janúar mánuði að ljúka og hefur ágætis vinna farið fram. All flestir hafa verið lestrarprófaðir og koma niðurstöður inná mentor á komandi vikum , einnig hafa allir fengið niðurstöðurnar afhentar í foreldraviðtölum.Það eiga sumir eftir að fylla út nýtt blað vegna leyfis eða ekki vegna myndbirtingar! þeir nemendur voru sendir með blað heim og eru beðnir um að skila því á mánudaginn!
Starfið hefur gengið almennt vel!
Eins og fram hefur komið í janúar þá hefur verið mikið um veikindi og virðist ekki vera taka endir! Svo við vonum að allir jafni sig fljótt og hlökkum við til að fá alla nemendur aftur í kennslu.
Góða helgi og njótið samverunnar
Arna Ýr, Gunni, Harpa, Heiða, Herdís, Inga Vala , Katrín Júlía, Kolla og Paula.
Sagnorðakönnun í 7.bekk mánudaginn 3.febrúar !
Mikilvægar upplýsingar varðandi keppnina
Í gær fengu nemendur textann sinn fyrir upplestrarkeppnina. Hver nemandi fékk 2 blöð með sama textanum, annað til að æfa sig á heima og hitt til að æfa sig á hér í skólanum.
Endilega minnið barnið ykkar á að æfa sig heima með því t.d. að lesa fyrir þig/ykkur foreldra og/eða ömmu og afa. Upplestrarkeppnin okkar (sem er undankeppni) fer fram á skólatíma mánudaginn 17. febrúar og eru þið velkomin að koma og horfa kl.8:30 á sal skólans.
Sigurvegarinn fer svo áfram sem fulltrúi Naustaskóla og etur kappi við fulltrúa annarra grunnskóla í aðalupplestrarkeppninni sem fer fram þann 4. mars.
Linkurinn - er fyrir nánari upplýsingar varðandi keppnina í heild sinni á landsvísu! Endilega kíkja á síðuna hjá þeim til að fá meiri innsýn og fróðleik.
Við ákváðum að enda mánuðinn á góðum styrktaræfingum á svæðinu - við leyfum myndunum að tala sínu máli :)
Orðarún lesskilningspróf
Nemendur í 7.bekk munu þreita lesskilningspróf á miðvikudag og fimmtudag. Þeim verður skipt í tvo hópa og taka prófin á svæðinu okkar.
Ný lestrarblöð
Þar sem janúar mánuði lýkur í dag þá eiga nemendur að afhenda lestrarblöðin á mánudaginn og fá ný afhent fyrir febrúar mánuð.
Það eru verkefni á bakhliðinni sem við minnum á að vinna líka!
Það má skrá allan lestur á lestrarblaðið - líka æfingar á upplestri fyrir keppnina!!
Hér er mynd af blaðinu svo allir eru meðvitaðir hvernig blaðið lítur út :)
Fræðsla í 6.bekk
Fræðsla í 7.bekk
Skyndihjálp
Unnið var með Hin - 3
Horfa - Hringja - Hnoða
ásamt því að styðjast við lagið Stayin´Alive til að halda takti við hjartahnoðið.
Hér kemur slóð á myndband með Vinnie Jones, þar sem hann fer í handtökin fyrir hjartahnoð. Við viljum hvetja ykkur til að kynna ykkur myndbandið með börnunum ykkar og jafnvel taka smá æfingu!