Vikupóstur 2. og 3. bekkur
16. - 20. mars
Kæru foreldrar/forráðamenn.
Umræður um árshátíðina og val á hlutverkum þurfti sinn tíma og í dag var endanleg hlutverkaskipan kynnt. Börnin völdu sér hlutverk og skráðu niður þrjú hlutverk sem þau vildu helst fá, vonum við að allir séu glaðir með sitt.
Söngæfingar á lögunum sem verða í atriðunum eru hafnar af krafti og í næstu viku byrja síðan æfingar á atriðinu í heild.
Börnunum er skipt í fjóra sýningarhópa og allir hópar sýna sama atriðið, árgangablöndun er í hópunum.
Tvær kannanir voru lagðar fyrir báða árganga í vikunni og er svörum skilað inn til réttindaráðs skólans.Spurt var um öryggi barnanna, finnst þeim þau örugg í skólanum og um aðgengi við og í skólanum. Kannanirnar eru hluti að að innleiðingarferli Naustaskóla að því að verða réttindaskóli UNICEF.
Í næstu viku verður svo æft og æft, æfingar verða á móti smiðjutímum á svæðunum.
Börnin eru full tilhlökkunar og stóðu sig vel í fyrsta yfirlestri í morgun.
Í stærðfræðinni ætlum við að taka meira inn OSMO sem námsleið og halda áfram að vinna að markmiðum á sem fjölbreyttastan hátt.
AUKASOKKAR - KALDAR og BLAUTAR TÁSUR.
Við viljum biðja ykkur um að hafa aukasokka í töskum barnanna, það eru mörg börn sem eru blaut og köld á fótunum eftir frímínúturnar.
Frístund hefur líka beðið okkur að koma þeim skilaboðum til ykkar að gott sé fyrir frístundarbörn að hafa 2 pör af auka sokkum í sínum töskum.
AÐ LOKUM:
Fylgist vel með fréttum frá skólanum og fræðsluyfirvöldum á Akureyri, á heimasíðu skólans, Facebooksíðu skólans og í tölvupósti.
Bestu kveðjur frá okkur öllum.
Teymi 2. og 3. bekkjar.
Útivistardagur þriðjudagur 17. mars
Börnin þurfa að koma með hollt og gott nesti og þau mega koma með heitt kakó/te ef þau vilja.
Börnin í 2. og 3. bekk geta ekki leigt skíðabúnað en mega koma með sinn búnað svo fremri sem þau séu sjálfbjarga á skíðum.
Skóladegi líkur klukkan 13:00 - sund verður ekki hjá 3. bekk.