Vikupóstur
27. - 31. janúar
Stutt og góð vika að baki sem litaðist af viðtalsdögum og fræðslu.
Næsta vika er fyrsta heila vikan í nýjum mánuði, sem þýðir?…...SÍMALAUS vika!!
Við viljum biðja foreldra um að aðstoða okkur í þessu og ræða við börnin sín um að skilja símann eftir heima, á sérstaklega við um þá nemendur sem hafa ekki náð nægilegri sjálfsstjórn til þess að láta símann vera, eða hafa hann í töskunni og ALLS ekki taka hann upp fyrr en að skóla lýkur. Þessa viku er ekki í boði að vera í símanum í frímínútum eða í hádegishléinu.
Við viljum einnig minna ykkur foreldra á það að ef þið þurfið að tala við börnin ykkar á skólatíma þá er alltaf hægt að hringja í ritara skólans sem kemur skilaboðum áleiðis. Það hefur því miður borið mikið á því að foreldrar hafa verið að hringja í börnin sín eða eru að skrifast á við börnin sín þegar að þau eru í tíma sem á að sjálfsögðu ekki að viðgangast.
Bendill (áhugasviðskönnun) er lögð fyrir 10. bekk á mánudaginn.
9. - og 10. bekkur fara á starfamessu á föstudaginn kl. 10
Góða helgi
Unglingateymið