HÚSBRÉFIÐ
11. ÁRG., 24. TBL
DAGSKRÁ VIKUNNAR 7. MARS. - 13. MARS
MÁNUDAGUR 7. MARS
Nemendaverndaráðsfundur í Bs kl. 8:30
Menntamálastofnun verður með kynning á nýju námsmati kl. 13:45 - 15:45 í sal Barnaskólans.
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS
Marítafræðsla fyrir nemendur og foreldra í 5. bekk í sal Hs kl. 12:10 - 13:10.
Nemendaverndaráðsfundur í hs kl. 8:15
Stjórnendafundur kl. 14:45
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS
Marítafræðsla fyrir nemendur í 7. - 9. bekk í sal Bs hefst kl. 8:00.
Deildarfundir í báðum húsum kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 10. MARS
Stjórnendafundur kl. 14:45
FÖSTUDAGUR 11. MARS - Mottumarsdagurinn
TAKK FYRIR VIKUNA OG GÓÐA HELGI :)
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Orð af orði upprifjunarnámskeið 14. mars kl. 15:00 í stofu 26 í BS, skráning hjá deildarstjórum.
- Spjaldtölvur og náttúrufræði - Hjálmur Dór Hjálmarsson verður hjá okkur þriðjudaginn 29. mars.
- Kynning á námsmati frá Menntamálastofnun verður 7. mars fyrir alla kennara í Bs kl. 13:45 - 15:45. Ef það eru kennarar á yngra stigi sem hafa áhuga á að mæta eru þeir velkomnir
- Marita fræðslan verður 8. og 9. mars.
Þriðjudagur 8. mars fundur með foreldrum og nemendum í 5. bekk kl. 12:10 í sal Hs.
Þriðjudagur 8. mars fundur með foreldrum nemenda úr 7.,8. og 9. bekk kl. 17:00
Þriðjudagur 8. mars fundur með nemendum og foreldrum í 10. bekk kl. 18:30 í sal BS.
Miðvikudgur 9. mars fundur með nemendum í 8. bekk kl. 8:00, 9. bekk. kl.9:00 og 7. bekk kl. 10:40 í sal Bs. - Kynning frá FÍV fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra 10. mars kl. 17:00
- 10. bekkur verður í starfskynningu þriðjudaginn 15. mars og í skólaferðalagi 16.-18. mars.
Tilkynningar !!
Rótarý í Vestmannaeyjum ætlar að styrkja skólann með því að gefa viðurkenningar fyrir árangur í íslensku einnig ætlar Rótarý að gefa verðlaun í lestrarsprettum skólans. Við þökkum þeim stuðninginn.
Lífshlaupsmeistarar starfsmanna GRV verða krýndir á árshátíðinni, vegleg verðlaun í boði.
Mottumars er hafinn og föstudaginn 11. mars hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla til að halda upp á Mottudaginn með því að leyfa karlmennskunni að skína sem aldrei fyrr !
Árleg söfnun ABC barnahjálpar hefst 1. apríl, það eru nemendur í 4. bekk sem sjá um söfnunina.
Aðstoð við heimalestur og heimanám erlendra nemenda er á Bókasafni Vestmannaeyja, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 - 17:15. Hvetjum nemendur til að nota sér þessa aðstoð.
Menntaspjall á Twitter: http://ingvihrannar.com/menntaspjall/ annan hvern sunnudag. Oft mjög áhugaverðar umræður.
Páskaleyfi nemenda hefst 18. mars og lýkur 30. mars.
Starfsdagur 29. mars.
Gáta vikunnar
Þrjótur mig í þátíð sló,
þetta fjall rís bratt úr sjó,
undir bílinn settur sá,
sérnafn líka manni á.
Svar við síðustu gátu
Föll
1. lína - sjávarföll (lóð og fjara)
2. lína - sauðaföll
Spakmæli vikunnar
Múslíkaka með grísku jógúrti frá Önnu Rós
Múslí að eigin vali (rest úr pokum til dæmis)
Lúka af hnetum t.d. pekanhnetum
2 msk smjör brætt yfir múslíið og hneturnar, þjappað saman í botn á eldföstu móti og bakað í 15-20 mín. Kanel stráð yfir botninn.
2 dósir grísk jógúrt
Gott að hræra út í jógúrtina agave sýrópi eða hunangi.
Ofan á eru sett frosin ber (sem hafa fengið að þiðna og eru orðin frekar blaut)