"DÓTAKASSINN"
Dalvíkurskóla, mars 2017
OSMO, Sphero, Quiver, raunveruleikagleraugu og fleira
Við höfum verið að vinna með ýmis tæki og tól í kennslustundum í upplýsingatækni undanfarið, á yngra stiginu í Dalvíkurskóla.
Skólinn á líka fjögur OSMO tæki, sem eru mjög skemmtileg tæki til að þjálfa meðal annars stærðfræði, myndmennt, tangram og fleira í gegnum skemmtileg öpp í iPad.
Krakkarnir hafa fengið að prófa Sphero, sem er lítill bolti sem þau stjórna með iPad. Það er bæði hægt að nota iPadinn sem fjarstýringu og einnig að forrita boltann.
Quiver er spennandi app sem lætur ákveðnar myndir lifna við. Hægt er að hlaða myndum niður á síðunni quivervision.com, prenta út og lita. Svo er hlaðið niður appi sem heitir Quiver, forritið látið taka mynd af myndinni sem var lituð og þá getur hún lifnað við.
Eins og þið sjáið er ýmislegt að gerast hjá okkur og krakkarnir mjög áhugasöm og glöð með að fá að kynnast tækninni á margvíslegan hátt.
Kveðja úr tölvustofunni!
Guðný.