Fréttabréf Naustaskóla

8. tbl. 12. árg desember 2020

Kæra skólasamfélag

Nú þegar þetta er skrifað er enn óljóst hvor að skólahald verði eðlilegt fyrir jólafrí. Þrátt fyrir það höldum við fast í okkar jólahefðir. Á mánudaginn skreyttu nemendur skólann, við erum búin að hafa jólahúfu/peysudag og í næstu viku verða þemadagar í tvo daga. Þema þessara daga verður að þessu sinni barnasaáttmáli sameinuðu þjóðanna og unnið út frá réttindum barna. Einnig fléttum við jólaföndri inn í þessa þemadaga og ætlunin er að búa til fallegt tré sem verður sameiginlegt verkefni allra nemenda og prýða mun vegg í matsalnum okkar. Við munum einnig leitast við að halda litlu jólin eins hefðbundin og hægt verður miðað við aðstæður.

Fyrir hönd starfsfólks Naustaskóla þakka ég fyrir gott samstarf á þessu skrítna skólaári og þakka ykkur einnig fyrir stuðning og sveigjanleika þegar breytingar komu með stuttum fyrirvara. Starfsfólk Naustaskóla á einnig skilið hrós fyrir elju, góða samvinnu og framúrskarandi lausnaleit til þess að skólastarfið geti gengið sem best við erfiðar aðstæður.

Gleðileg jól!

Bryndís Björnsdóttir, skólastjóri.

Skólastarf til 9. des

Þar sem komið hefur í ljós að engar breytingar verða á sóttvarnarreglum a.m.k. til 9. desember næstkomandi. Hvað tekur við eftir það mun koma í ljós þegar þar að kemur. Við höldum því okkar striki og gerum ekki breytingar á skipulagi sem nú er á skólastarfinu í Naustaskóla.

Gildandi sóttvarnarreglur eru í hávegum hafðar í Naustaskóla.

Þær eru einfaldar en samt er gott að fara reglulega yfir þær með börnunum svo allir fylgi þeim eftir:

1. Verum dugleg að þvo okkur um hendur með sápu og vatni eða nota spritt. Alltaf skal spritta hendur við komu í matsal. (1. - 4. bekkur)

2. Forráðamenn koma ekki inn í skólann (nema afar brýna nauðsyn beri til og þá í samráði við skólann) og þá þurfa þeir að nota andlitsgrímu og spritta hendur við inngang.

3. Sýnum virðingu í samskiptum og virðum nándarmörk sem eru 2 metrar innan skólans fyrir fullorðna einstaklinga og nemendur í 8. - 10. bekk.

4. Starfsfólk og nemendur í 8. - 10. bekk þurfa að bera andlitsgrímur ef ekki er hægt að ná 2 metra fjarlægðarmörkum.

5. Ef nemendur hafa kvefeinkenni, sáran háls, hitaslæðing, miklar magakvalir eða beinverki skal halda þeim heima og tilkynna veikindi.

6. Láta skal skólann vita ef upp koma Covid19 smit á heimili svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir.

Á döfinni í desember

Ath. gæti breyst eftir 9.des!


1. des - Frjálst nesti og sparifatadagur

2. des - Jólahúfu og peysu dagur

10 - 11. des - Jóla- og barnasáttmála þema

21. des - Litlu jól

22. des - Jólafrí

4. jan - Starfsdagur ( frístund lokuð )

5. jan - Fyrsti skóladagur eftir jólafrí

Eineltishnappur

Við viljum benda á að inn á heimasíðu skólans undir yfirskriftinni Stuðningur er að finna tengil inn á eineltisáætlun Naustaskóla. Hvetjum lesendur til þess að kynna sér hana. Nú höfum við bætt við hnappi á heimasíðuna þar sem foreldrar og nemendur geta tilkynnt grun um einelti.

Andlitsgrímur og unglingastigið

Kæru forráðamenn! Eins og allir vita þurfa nemendur í 8. -10. bekk að notast við andlitsgrímur hér í skólanum þegar þeir stunda nám sitt. Við minnum mikilvægi þess að allir komi með grímur í skólann og hafi hana á sér við flest tilefni.

Litlu Jólin 2020

Það er margt sem breytist í skólalífinu þegar heimsfaraldur er annars vegar. Eitt af því eru Litlu jólin. Ef tekið er mið af þeim reglum sem nú gilda í samfélaginu og um skólastarfið, verður ekki hægt að halda hefðbundin litlu jól þetta árið. Við munum því leggjast undir feld og finna góða leið til að allir fái að njóta aðventunnar í skólanum. Allar nánari upplýsingar munu koma frá umsjónarkennurum þegar nær dregur.

Mikilvægt í myrkrinu!!!

Minnt er á að sleppistæði eru við Kjarnagötu og Lækjartún sem nýta á ef börnum er ekið í skólann. Eitthvað hefur borið á að bílum sé lagt á hringtorgið við aðalinngang skólans, sem skapar mikla hættu. Hjálpumst að við að láta umferðina ganga vel á morgnana og einnig eru nemendur hvattir til þess að ganga í skólann.

Jólaandinn 2020

Þrátt fyrir skrýtna tíma þá er jólandinn í húsinu mjög góður :) Nemendur og kennarar hafa verið dugleg að búa til alls kyns flottar jólaskreytingar og fleira.


Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá starfinu:

Big picture
Big picture
Big picture
Big picture
Big picture
Big picture
Big picture