HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 29. TBL
DAGSKRÁ 1. - 7. maí
MÁNUDAGUR 1. MAÍ
Lögskipaður frídagur á Íslandi síðan 1972 og er þetta 121 dagur ársins.
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ
Fagfundur í ensku, fagstjóri lætur vita um stað og tíma.
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ
Skóladagur í BS hefst kl. 17:00, hvetjum starfsfólk skólans til að mæta.
Fundartími í Hs verður notaður til undirbúnings.
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ
Stjórnendafundur í HS klukkan 15:00
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ
Söngur á sal í HS
Góða helgi
Áhugaverð atriði næstu vikur
- 8. og 11. maí verður vorskóli fyrir 5. ára deildina, það eru þær Guðrún Snæ., Magga Beta og Íris Páls sem munu sjá um vorskólann.
- Fundur hjá skólstjórnendum Suðurlands verður 11. - 12. maí í Eyjum. Fundað verður í sal Hamarsskóla en heimsókn í Barnaskóla á föstudagsmorguninn.
- ENO verkefnið fer fram 12. maí 2017 http://treeday.enoprogramme.org/ 6. og 7. bekkja kennarar til í slaginn og verða með í þessu verkefni. Ef fleirri vilja vera með er það hægt. Hafa samband við Hönnu ef þið viljið frekari upplýsingar.
- Lokaverkefni í 10. bekk hefst 16. maí
- Foreldrafundur fyrir væntanlegra nemenda í 1. bekk verður 23. maí
- 24. maí skóladagur í HS
- Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk verða 29. - 31. maí
Fjölgreindaleikar 29. og 30. maí
- Fjölgreindarleikar á mið- og yngsta stigi verða dagana 29. maí og 30.maí.
- Kennurum á mið- og yngsta stigi verður skipt í tvo hópa sem stöðvastjórar, annar hópurinn sér um stöðvar í Íþróttahúsi og hinn í Hamarsskóla. Kennarar þurfa senda inn lýsingu á sinni stöð fyrir 12. maí. Stjórnendur leikanna senda út hópaskiptinguna og eyðublöð fyrir stöðvalýsing í næstu viku.
- Starfsfólki skólans sem mun taka þátt í leikunum er bent á að horfa á vídeó frá síðustu leikum til upprifjunar. https://www.facebook.com/grunnskolivestmannaeyja/videos/474742106067214/
Tilkynningar !!
- Söngur á sal í Hs föstudaginn 5. maí.
- Námsmat í skólanum. Öllu námsmati á að ljúka í vikunni 8. - 12. maí, allt námsmat á að vera komið inn á Menntor fyrir 26. maí.
- Handavinnuhittingur - GRV ætlar að taka þátt í verkefninu "kærleiksteppi".
Verkefnið gengur út á að prjóna eða hekla barnateppi sem við færum Útfarastofu kirkjugarðanna að gjöf. Tepppi verða notuð í kistur hjá fóstrum eða börnum. Ef einhverjir vilja taka þátt í þessu fallega samfélagsverkefni þá endilega fáið upplýsingar hjá flottu stelpunum í Handavinnuhóp - GRV. Upplýsingar um verkefnið verða á kaffistofum skólans. - Áhugaverður vefur: rímorðabók: http://islenska.org/rima/
Bláberjaísterta
Innihald
Botn:
- 85 g cashewhnetur
- 85 g möndlur
- 50 g döðlur
- 2 msk agavesíróp
Ísfylling:
- 160 g cashewhnetur
- 100 g Brasilíuhnetur
- 375 ml möndlumjólk (ef mjólkin er ósæt þarf að bæta við 2 msk af agavesírópi)
- 140 g bláber
- 70 ml agavesíróp
- 4 msk kókosolía
- 1 tsk vanilludropar (úr heilsubúð)
- 0,5 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Aðferð
- Leggið döðlur, hnetur og möndlur fyrir botninn í bleyti í klukkustund eða lengur.
- Leggið hnetur fyrir fyllinguna í bleyti í klukkustund eða lengur.
- Hellið vatninu af hnetum, möndlum og döðlum. Setjið hnetur og möndlur í matvinnsluvél og blandið þangað til fínkornótt (en ekki maukað).
- Setjið döðlur og 2 msk agavesíróp í matvinnsluvélina og blandið vel (ekki samt þannig að verði að mauki heldur mjög smátt saxað).
- Setjið plastfilmu innan í lausbotna, djúpt 20 sm kökuform. Þrýstið því sem var í matvinnsluvélinni vel niður í formið og jafnið botninn vel út. Setjið botninn í frysti á meðan þið undirbúið fyllinguna.
- Nú skuluð þið undirbúa fyllinguna:
- Hellið vatninu af hnetunum og setjið í matvinnsluvél ásamt vanilludropum. Maukið í a.m.k. 30 sekúndur eða þangað til hneturnar eru nokkuð maukaðar. Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar og bætið bláberjum, salti og agavesírópi saman við. Maukið í 1 mínútu eða þangað til fyllingin er orðin mjúk.
- Skafið hliðar matvinnsluvélarinnar og kveikið á henni. Á meðan vélin vinnur skuluð þið hella kókosolíunni í mjórri bunu út í matvinnsluvélina, ásamt möndlumjólkinni. Látið vélina vinna í um 1 mínútu eða þangað til blandan er flauelismjúk. Ef ykkur finnst blandan mega vera sætari, bætið þá aðeins meira af agavesírópi út í.
- Takið botninn úr frystinum og hellið fyllingunni yfir. Setjið ístertuna í frystinn og frystið í 4-5 klukkustundir eða þangað til ísinn er frosinn í gegn.
Spakmæli vikunnar
Lífið er 10% það sem kemur fyrir þig og 90% hvernig þú bregst við því.
Charles R Swindoll
Staðreyndir um skóladagatalið 2016 - 2017
Skóladagurinn í Hamarsskóla verður miðvikudaginn 24. maí.
Staðreyndir um skóladagatalið 2016 - 2017
Aðeins eru tvær kennsluvikur eftir af skólaárinu sem eru óskertar, þ.e.a.s. enginn frídagur.
Staðreyndir um skóladagatalið 2016 - 2017
Öllu námsmati (prófum) á að vera lokið 12. maí.
Kennarar þurfa að vera klárir með allt námsmat inn á Menntor þann 26. maí.
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.
Heilsuhópur GRV
Facebook síða heilsuhópsins
5. bekkur
Nemendur útbjuggu pöddugildrur og gerðu ýmsar tilraunir í náttúrufræði.
5. bekkur
Mjög áhugasamir nemendur.
5. bekkur
Greinilega skemmtilegt verkefni.