Menntabúðir #Eymennt 5/6
Þelamerkurskóla 21. febrúar kl. 16:15-18:00
Fimmtu menntabúðir vetrarins
Fimmtu menntabúðir #Eymenntar í vetur verða haldnar í Þelamerkurskóla þriðjudaginn 21. febrúar kl. 16:15-18:00. Viðfangsefni menntabúðanna er upplýsingatækni í skólastarfi.
Að venju verður byrjað á að safnast saman til að kynna dagskrána. Síðan verða tvær lotur með menntabúðum og kaffitími á milli þeirra.
Dagskrá og skráning
Kl. 16:15-16:30 Móttaka
Kl. 16:30-17:05 Fyrri lota menntabúðanna
Kl. 17:05-17:25 Kaffitími
Kl. 17:25-18:00 Seinni lota menntabúða
Smellið hérna til að skoða dagskrána. Hún mótast fram að menntabúðunum og tekur mið af því sem þið getið lagt fram, enn eru laus pláss og viðfangsefnin eru mörg og við erum viss um að þið getið miðlað af reynslu ykkar.
Hvað er #Eymennt?
#Eymennt er samstarfsverkefni sex skóla við Eyjafjörð um menntabúðir um upplýsingatækni í skólastarfi. Skólarnir eru Hrafnagilsskóli, Brekkuskóli, Oddeyrarskóli, Þelamerkurskóli, Dalvíkurskóli og Grunnskóli Fjallabyggðar.
Á skólaárinu 2016-2017 eru áformað að halda sex menntabúðir, eina í hverjum skóla. Menntabúðirnar eru opnar öllum áhugasömum kennurum og skólastjórnendum af öllum skólastigum.