Föstudagsfréttir 22. maí 2020
Ævinlega magnað
Góðan daginn allir saman!
- Við notuðum vikuna til að klára verkefni í hverri námsgrein.
- Á miðvikudag var kræsingakaffi hjá okkur sem heppnaðist stórvel.
- Þeir nemendur sem eiga eftir að skila bókum á bókasafnið verða að klára það strax á mánudaginn, vinsamlegast skoðið þetta vel hjá ykkur.
- Í næstu viku munum við leggja áherslu á að klára síðustu námsverkefni þessa skólaárs.
- Allir þrír árgangar unglingastigs fara í ísferð í næstu viku, nánari upplýsingar um það koma á mánudag.
- Nemendur 10. bekkjar fara í skólaferðalag á miðvikudagsmorgni og koma heim um miðjan föstudag.
- Á meðan 10. bekkur verður í burtu mun 8. og 9. bekkur halda sínu striki í skólanum en það verður líka gefinn tími í hópefli.
Bestu kveðjur og góða helgi,
Andri Snær, Ása Katrín, Bjössi, Guðrún Valdís, Inga Heiðdís, Íris Berglind, Katý, Kolbrún, Magnús og Sigurlaug.