Vikupóstur
Upplýsingatækni í skólastarfi - 3. apríl 2020.
Hugmyndir fyrir heimilin í páskaleyfinu
Við tókum saman þessar hugmyndir eftir fundi okkar með list- og verkgreinakennurum og íþróttakennurum.
Skólarnir ættu endileg að deila þessum hugmyndabanka í netpósti til heimilanna með því að afrita þessa slóð https://www.smore.com/0th7b og líma í póstinn. Svo má einnig birta hann á vefsíðum skóla og Facebooksíðum skóla og Twitter fyrir þá sem þar eru og þá er hafður sami háttur á copy/paste :-)
Fjarfundir þessa viku
- Fundir með sérkennurum allra skólanna
- Fundir með íþróttakennurum allra skólanna
- Fundir með list- og verkgreinakennurum allra skólanna
Kennsluráðgjafar vinna úr fundunum og taka saman helstu punkta og fara í viðbragðsvinnu ef ástæða þykir til. Fundargerðir eru opnar til skráningar upplýsinga og fundarmenn geta nálgast þær áfram eftir fundina til að skrá inn frekari upplýsingar og ábendingar frá skólunum.
Það er áhugavert að fylgjast með því hvaða leiðir skólar eru að velja að fara í breyttum kennsluháttum þar sem fjarnám og blandað nám (fjarnám og staðnám) er meginstefið. Kennarar nýta rafrænt efni og eru um leið að leita ýmissa leiða. Gerð kennslumyndbanda og útgáfa fjarnámsvefa skóla (heimaskóla) er mest áberandi.
Fjarnámsvefir skóla
Það eru góðfúsleg tilmæli til ritstjóra fjarnámssíðu skólanna að setja inn vísanir á efni fjarnámssíðunnar spjaldtolvur.kopavogur.is/fjarnam/ þar sem það á við.
Fjarnámsvefir skóla í Kópavogi:
Það er sérstaklega skemmtilegt að sjá hvernig vefirnir eru að þróast og breytast með hverjum deginum.
Seesaw - rafrænar námsferilmöppur í Kópavogi
VIð útbjuggum leiðbeiningar skref fyrir skref fyrir þá kennara sem vilja nýta sér þetta verkfæri en
Seesaw er sérstaklega gott fyrir yngstu bekkina áður en þau fá eigið tæki og fara í Google Classroom. Nemendum eru kennd sjálfstæð vinnubrögð þar sem þau læra að sækja sér fyrirlögð verkefni í Activities (Peruna) og skila inn á sama stað. Gott ráð er að hafa alltaf val um nokkur verkefni. Kennari getur sett inn mörg verkefni og látið þau birtast eftir dagsetningum. Þannig geta kennarar unnið sér í haginn.
Seesaw hefur verið nýtt fyrir lokaskil verkefna í sumum skólum á landinu en Seesaw vinnur vel með Google umhverfinu.
Fjarnám - kennarar
Fjarnám - foreldrar
Fjarnám - nemendur
Gátlistar vikunnar
Sérstök áhersla þessa vikuna er á fyrstu vikuna eftir páskaleyfi. Við útbjuggum gátlista fyrir skólastjórnendur og kennara því tengdu en búast má við að fjarnám skipi stóran sess áfram í námi grunnskólabarna í ljósi beiðnar sóttvarnarlæknis til heilbrigðisráðherra um framlengingu á samkomubanni. Gátlisti kennara nr. 4.
Kennsluráðgjafar hvetja ykkur til að nýta ykkur leiðbeiningar og efni spjaldtölvuvefsíðunnar og vera dugleg að benda nemendum og foreldrum á hana líka.
Upplýsingatækni í skólastarfi Kópavogsbæjar
Email: beggath@kopavogur.is
Website: https://spjaldtolvur.kopavogur.is/
Location: Kópavogsbær
Phone: 441-2713 893-1382
Facebook: https://www.facebook.com/groups/360092074179541/