Vikupóstur leikskóladeildar
28. mars - 1. apríl 2022
Vikan
- Málhljóðið Á. Gott að æfa sig að opna munninn og segja A og kringja svo varirnar því hljóðið breytist þá í munninum á okkur.
- Það er vor í lofti þó loftið sé ennþá kalt og við byrjuðum að nota sumarleikföng.
- Flestir skiptu um sæti við matarborðið vegna fjölgunar.
- Lékum okkur frjálst í bláa salnum í Ásgarði á mánudaginn. Íþróttakennari veikur.
- Ferðin á sýninguna Fiskur og fólk á Sjóminjasafninu gekk mjög vel. Sú sem tók á móti okkur var mjög góð að útskýra allt á einfaldan hátt fyrir börnunum. Við þurftum að taka fjóra strætóa og það gekk alveg áfallalaust fyrir sig.
- Við fylgdumst með Flatóvisjón og börnin störðu agndofa á þessi flottu atriði.
Páskaeggjagerð.
Loksins úlpa, húfa og skór sögðu börnin.
Sáum eldgamlan kafarabúning.
Næsta vika
- Nanna Guðrún byrjar hjá okkur í næstu viku og við ætlum að taka vel á móti henni.
- Smá vikuruglingur með ferðirnar. 2016 árgangurinn fer í næstu viku á Ljósmyndasafnið og 2017 árgangurinn í Ráðhús Reykjavíkur.
- Við bjóðum upp á foreldrasamtöl í næstu viku. Skráning fer fram á mentor.is. Ef einhver telur sig þurfa meira en 20 mínútur þá er best að hafa samband og fá annan tíma.
Hlý kveðja,
Herdís, Marley, Helen og Linda
Leikskóladeild Flataskóla
Email: flataskoli@flataskoli.is
Website: https://4og5ara.flataskoli.is/
Location: við Vífilsstaðaveg
Phone: 617-1573