Föstudagspóstur 15. maí 2020
Ævinlega magnað
Ævinlega allir saman!
Flottri viku að ljúka hjá okkur á unglingastiginu.
- Vikan var hefðbundin samkvæmt stundatöflu í lærdómnum fyrir utan að við brutum upp kennslu í þematímum. Við borðuðum vöfflur, fórum í leiki á Hamarkotstúni og spiluðum.
- Í gærkvöldi var 10. bekkur með sumarball og var góð mæting hjá nemendum unglingastigs, mikið fjör!
- Stjórnendur vilja koma þessum skilaboðum á krakkana til að einfalda hjólaumferðina við skólann: Við höfum ákveðið að 10. bekkur og 4. - 5. bekkur leggi sínum hjólum á bílastæðinu upp við vegginn þar sem snjóhóllinn var, hinir bekkirnir leggja upp við veggina fyrir framan skólann.
- Skilaboð frá bókasafnsverði: Nú þegar komið er að skólalokum, verður síðasti útlánadagur á bókasafni 20. maí.
- Næsta vika er stutt þar sem það er uppstigningadagur á fimmtudag og starfsdagur á föstudag.
- Á miðvikudag í næstu viku er kræsingakaffi á unglingastiginu og eiga nemendur fæddir í janúar til júní að koma með kræsingar.
Bestu kveðjur og góða helgi,
Andri Snær, Ása Katrín, Bjössi, Guðrún Valdís, Inga Heiðdís, Íris Berglind, Katý, Kolbrún, Magnús og Sigurlaug.