Föstudagspóstur
6. og 7.bekkur
Heil og sæl kæru foreldrar
Gleðilegan föstudag! Vikan hefur heldur betur verið fjölbreytt og skemmtileg. Við byrjuðum vikuna á að hefja sundkennslu á ný. Við höfum verið að vinna að fjölbreyttum verkefnum í vikunni og erum við á fullu að klára markmið vetrarins.
Báðir árgangar fóru á frjálsíþróttamót í vikunni sem var hrikalega skemmtilegt og stóðu krakkarnir sig þvílíkt vel. Þau hvöttu hvert annað áfram og var góð þátttaka í báðum hópum.
Komið hefur upp lús í 6. bekk og því mikilvægt að allir verði kembdir um helgina og það á við um báða árganga.
6. bekkur
6. bekkur fór í vettvangsferð á Listasafnið á mánudaginn sem var. Þetta var frábær upplifun og höfðu börnin mjög gaman af. Nokkrir nemendur úr 6. bekk í Naustaskóla eiga verk á sýningunni og vorum við mjög stolt af þeim. Það er frítt út maí að skoða safnið og hvetjum við ykkur eindregið til að kíkja.
Við byrjuðum á því að lestrarprófa í vikunni og komum til með að klára það í næstu viku.
Allir í stuði á frjálsíþróttamótinu!
Heimsókn á Listasafnið
Spennandi verk á Listasafninu
7. bekkur
Á fimmtudag síðasta fóru strákarnir í heimsókn í Hlíðarskóla. Þeir fóru í fjörferð, spiluðu körfubolta og grilluðu. Stelpurnar fóru á meðan í heimsókn til Paulu þar sem þær grilluðu og áttu góðar stundir saman.
Við byrjuðum að lestrarprófa og munum klára það í næstu viku.