Föstudagssamantekt
Vikan 3.-7.febrúar
Dagur stærðfræðarinnar
Við leyfum myndunum að tala sínu máli.
Lesskilningspróf
6.bekkur mun einnig þreyta prófin í febrúar!
Innivera í fríminútum í 7.bekk
Að sjálfsögðu mega þau fara út ef þeim langar það frekar!
Minnum á mikilvægi heimalestrar!
Óskum eftir því að nemendur sem hafa EKKI skilað,
SKILI LESTRARBLÖÐUM FYRIR JANÚAR MÁNUÐ !
Það ættu allir að vera komnir með ný lestrarblöð fyrir febrúar í töskurnar - ef ekki , minna þau á að fá nýtt hjá okkur á mánudaginn.
6.bekkur - Amtsbókasafnið
Nemendur sem eiga bókasafnskort mega endilega taka það með í skólann þennan dag!
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn
Við hvetjum til umræða heima fyrir um samskipti og öryggi á internetinu!
Vikan
Starfið hefur verið með hefðbundnum hætti og gengur allt sinn vanagang.
Það stóð til að nemendur í 7.bekk fengju fræðslu um Vape í vikunni en henni varð frestað um óákveðin tíma.
Aftur á móti fengu allir nemendur stutta kynningu frá starfsfólki Rósenborg um alls konar námskeið sem eru að hefjast eða eru hafin. Nemendur fóru með bækling heim með ítarlegri upplýsingum.
Hvetjum alla til að skoða þessi spennandi námskeið !
Næsta vika verður með nokkuð hefðbundnum hætti, 7.bekkur mun þó auka æfingar fyrir upplestrarkeppnina!
Góða helgi kæra fólk!
Þess óska
Arna Ýr, Harpa, Herdís, Heiða, Inga Vala, Katrín, Kolla, Paula og Gunni.