Fjarnám
Menntaskólinn á Ísafirði
Velkomin/n í fjarnám í MÍ
Héðan frá Ísafirði sendum við okkar bestu kveðjur og bjóðum þig hjartanlega velkomna/velkominn í fjarnám við Menntaskólann á Ísafirði.
Hér að neðan er að finna allar helstu upplýsingar sem snúa að fjarnáminu.
Við í MÍ hvetjum þig til að byrja fjarnámið strax af krafti og óskum þér góðs gengis í náminu. Endilega hafðu samband við okkur ef eitthvað er.
Nemendur með námsörðugleika þurfa að láta kennara sína vita. Þurfi nemendur á sérstökum úrræðum í námi að halda, t.d. vegna lesblindu, þarf beiðni þar að lútandi að koma frá nemandanum sjálfum.
Ekki hika við að nýta þér þjónustu okkar
Sömuleiðis hafa nemendur aðgang að þjónustu áfangastjóra fjarnáms. Áfangastjóri er Heiðrún Tryggvadóttir (heidrun@misa.is). Möguleiki er að fá viðtöl við hana eftir samkomulagi bæði í síma og á Teams. Hægt er að panta tíma hjá ritara eða hér.
Við fjarnámskennslu notum við í MÍ námsumhverfið Moodle. Á heimasíðunni okkar, www.misa.is, geturðu farið beint á Moodle-síðuna okkar.
Allir fjarnemar sem hafa greitt fjarnámsgjöld eru búnir eða við það að fá sendan aðgang í tölvupósti. Ef þú hefur verið áður í fjarnámi hjá okkur notarðu sama aðgang og áður. Ef aðgangurinn er glataður er hægt að hafa samband við Elínu, ritara skólans á netfangið elin@misa.is
Nemendur í fjarnámi fá aðgang að Microsoft Office pakkann hjá skólanum og geta notað hann á meðan þeir eru skráðir í nám við skólann.
Til að skrá sig inn í Office kerfið notarðu sama aðgang og að Moodle - eina sem breytist er að þú bætir @fvi.is aftan við aðgangsorðið. Ef þú lendir í vandræðum með Office aðganginn þinn hafðu þá samband við Guðjón Torfa tölvuumsjónarmanninn okkar, gudjonts@misa.is
Flestir fjarnemar eiga að vera búnir að fá senda greiðsluseðil í heimabankda . Ef fjarnámsnemandi er ekki orðinn 18 ára fer greiðsluseðillinn í heimabanka forráðamanns. Ef þú skráðir þig í dag er greiðsluseðillinn á leiðinni í heimabanka.
Athugaðu þó að þetta á ekki við um nemendur sem eru í fjarnámi í gegnum Fjarmenntaskólann eða eru í sjúkraliðanámi í Fjarmenntaskólanum.
Verðskrá:
Eftirfarandi gjaldskrá gildir fyrir fjarnám frá og með haustönn 2021.
Innritunargjald í fjarnám er 6.000 kr. á önn. Innritunargjaldið er ekki endurgreitt og kennslugjaldið aðeins í undanteningartilfellum.
- Fyrir 1áfanga greiðast innritungargjöld og 13.000 kr. = 19.000 kr
- Fyrir 2 áfanga greiðast innritunargjöld og 26.000 kr. = 32.000 kr
- Fyrir 3 áfanga greiðast innritunargjöld og 39.000 kr = 45.000 kr
Ákveði fjarnámsnemandi að hætta í áfanga þarf hann að láta kennara og fjarnámsstjóra MÍ (fjarnam@misa.is) vita. Hægt er að segja sig úr áföngum fyrstu þrjár kennsluvikurnar. Ef nemandi hættir í áfanga eftir það fær hann fall (F) í áfanganum.
Athugið að fjarnámsgjöld eru ekki endurgreidd.
Um okkur
Email: fjarnam@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnesi 400 Ísafirði
Phone: 4504400
Facebook: https://www.facebook.com/menntaisa/