ENSK3YN05
Enska - yndislestur
Áfangalýsing
Áfanginn gengur út á að nemendur lesi enskan texta sér til ánægju og yndisauka. Í stað tímasóknar er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda þar sem þeir nýta tímann til lesturs og verkefnavinnu sem tengist textanum. Nemendur velja sér fjórar bækur, lesa þær og skila inn skýrslum. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á að útvega sér les efninu. Nemendur geta sjálfir ákveðið hvaða bækur þeir lesa en þó með ákveðnum reglum, kennari útskýrir nánar.
Markmið:
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi tegundum bókmennta
enskum bókmenntum og samfélaginu eins og það birtist í bókmenntum
orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sér til gagns og gamans bókmenntatexta
skilja meginefni óstytts bókmenntatexta
vnna með nýjan orðaforða
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig á ensku um efni sem hann hefur kynnt sér til hlýtar
átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
tjá rökstudda afstöðu og taka þátt í málefnalegri umræðu um bókmenntir