Vikupistillinn
Tímabilið 3. - 9. febrúar 2020
Hjálpum nemendum okkar að nota gott orðbragð og orðfæri við hvert annað
Punktar
- Logos skimun, jan – feb. nemendur í 3. bekk.
Góð heimasíða sem hægt er varpa upp á skjáinn í stofum.
Hægt er að hafa skilaboð til nemenda, klukku og skeiðklukku, hvað mikið er eftir af tímanum. Líka hvernig veggfóður þið viljið hafa (hægt líka að setja sína eigin mynd/ir). Hægt líka að setja hávaðamörk. Ég er búinn að skoða hana og þetta er gott tæki til að fá aukna athygli í skólastofunni (Steinar).
- Widgit Online er veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta hafið samband við Steinar.
- Minnum umsjónarkennara á að skoða ástundun nemenda sinna samkvæmt nýju reglunum. Það er hægt að nálgast allar upplýsingar á vefslóðinni http://innri.hafnarfjordur.is/thjonusta/fraedsluthjonusta/form-og-eydublod/
- Vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði hefur undirgöngunum við Þorlákstún/Tjarnarvelli og aðliggjandi stígum verið lokað. Sjá nánar.
- Hér má nálgast verkefnaskrá ársins ásamt nýju fundaskipulagi ársins
- Frá 1. janúar 2020 eiga starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar rétt á ókeypis skírteini hjá Bókasafni Hafnarfjarðar. Framvísa þarf starfsmannaskírteini við stofnun / endurnýjun bókasafnsskírteinis. Vonandi sjáum við sem flesta starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar nýta sér bókasafnið.
Ytra mat Menntamálastofnunar - skýrslan
Geta má þess að við komum ákaflega vel út úr þessari úttekt og fékk skólinn mikið hrós á mörgum þáttum starfseminnar. Þarna er einnig bennt á fjölmörg tækifæri til að gera betur.
Hér má nálgast skýrsluna. Hér eru glærurnar frá kynningunni.
Fyrir 1. mars þarf skólinn að skila umbótaáælun til Menntamálastofnunar.
SMT hugleiðingar
Hvalamiðar:
Verum dugleg að gefa hvalamiða í janúar og styrkjum þá um leið jákvæða hegðun.
Koma svo - Nú þurfa allir að vera á tánum.
Mánudagur 3. febrúar
- 100 miða leikurinn hefst og stendur til 14. febrúar.
- Símalaus dagur hjá nemendum í elstu deild.
- Verið - miðdeild - Brandarakvöld.
- Verið - elsta deild - Brandarakvöld.
Þriðjudagur 4. febrúar
- Söngsamvera.
- Nemendur í 9. bekk fá fræðslu um líðan og geðsjúkdóma frá Hugrúnu geðfræðslufélagi. kl. 12:40 í 9. GRB og kl. 13:20 hjá 9. MK.
- Á fundatíma eru deildarfundir.
Miðvikudagur 5. febrúar
- Samvera 2. HSJ.
- Jón Ragnar Jónsson kemur með fræðslu til nemenda í 8. bekk, kl. 10:00 í 8. GB og kl. 10:40 eða kl. 9:00 í 8. SB .
- Nemendur sem fara á leiksýningu Grunnskólahátíðarinnar fá að fara kl. 11:00 en sýningin hefst kl. 11:30.
- Fundur hjá Brúarteymi kl. 14:05 á fundarherberginu.
- Verið - miðdeild - Lokað vegna Grunnskólahátíðar.
- Verið - elsta deild - Grunnskólahátíðin frá kl. 19:00 - 22:00, ballið fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu. Nemendur mæta kl. 18:00 í skólann og fara með rútu á ballið. Grétar og Hilmar Trausti eru á vakt frá skólanum.
Fimmtudagur 6. febrúar
- Kennsla hefst kl. 10.00 í elstu deild.
- Heimanámsaðstoð Rauða krossins hefst kl. 13:20 á bókasafninu.
- Fundur í lausnateymi SMT kl.14:00 hjá námsráðgjafa.
- Á fundatíma eru teymisfundir A.
Föstudagur 7. febrúar
- Dagur stærðfræðinnar. Setjum þrautir á hurðir kennslustofa.
- Verið - elsta deild - Karaoke.
Líkamsræktarstyrkur
Eru ekki allir byrjaðir í líkamsrækt á nýju ári?
Eins og flestir vita að þá styrkir Hafnarfjarðarbær sitt starfsfólk um kr. 12.000,- í líkams- og heilsuræktarstyrk.Skila þarf útfylltu eyðublaði til skólastjóra ásamt kvittun fyrir útlögðum kostnaði.
Olweus - nemendaviðtöl
Aðgangur grunnskóla Hafnarfjarðar að Snöru
Fréttir frá Bjargi
Opnað hefur verið fyrir skráningar á febrúarnámskeið fyrir grunnskólakennara á höfuðborgarsvæðinu
Í febrúar 2020 er grunnskólakennurum boðið upp á endurmenntunarnámskeið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru af ýmsum toga og miða að því að færa aðferðir og skipulag í kennslu sem styður við nám fyrir alla.
FEBRÚAR námskeiðin eru:
1. Vendikennsla – Hvernig og af hverju: Mánudagur 3. febrúar kl. 14-16.
2. Leiklist í kennslu – fjölbreyttar kennsluaðferðir: Þriðjudagur 4. febrúar kl. 15-17.
3. Kami og Google lausnir í einstaklingsmiðuðu námi: Fimmtudagar 6. og 13. febrúar og 12. og 19. mars kl. 14-16.
4. Skapandi stærðfræði: Laugardagar 8. og 15. febrúar kl. 9-13.
5. Að stýra samræðu í skólastofunni: Mánudagur 10. febrúar kl. 14-16.
6. Microsoft Small Basic forritun: Þriðjudagur 11. febrúar kl. 14.30-16.30.
7. Teymiskennsla- skipulagning innan teymis: Miðvikudagar 12. og 26. febrúar kl. 14.30-16.30.
8. Heimspekileg samræða í almennri bekkjarkennslu: Mánudagur 24. og þriðjudagur 25. febrúar kl. 14-17.
Nánari lýsing á einstaka námskeiðum og vefslóð á skráningu: http://ssh.menntamidja.is/kennslufraedi/vornamskeid-2020/ eða í gegnum forsíðu ssh.menntamidja.is vefjarins.
Afmælisdagar í febrúar
Wendy 8. febrúar, Kristinn og Ægir þann 15. febrúar og Dísa 28. febrúar. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Frímínútur
Frá foreldradegi í Bjargi
Frá foreldradegi í Bjargi
Á döfinni í janúar og febrúar
- Skólapúlsinn – úrtak nemenda.
- Sjórnendur koma í innlit í kennslustundir.
- Þriðjudaginn 11. febrúar er könnunin Ungt fólk 2020 lögð fyrir nemendur í 8. - 10. bekk.
- 11. febrúar er kynning á framhaldsskólunum sem verður í Tækniskólanum í Hafnarfirði, fyrir nemendur í 10. bekk.
- Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 11. febrúar.
- 100 miða veisla verður 18. febrúar.
- Úrslit stóru upplestrarkeppninnar í Hvaleyrarskóla þriðjudaginn 25. febrúar.
- Skipulagsdagur 19. febrúar.
- Vetrarfrí 20. og 21. febrúar.
- Öskudagur 26. febrúar, kennt til hádegis.
- Netöryggi barna og unglinga, fræðsla fyrir nemendur í 5. - 10. bekk, Eyjólfur Örn kemur þann 27. febrúar.
- Árshátíð Hafnarfjarðarbæjar, laugardaginn 7. mars.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200