HÚSBRÉFIÐ
11. ÁRG., 20. TBL
DAGSKRÁ VIKUNNAR 8. - 12. FEBRÚAR
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR - Bolludagur
Nemendaverndaráðsfundur í Bs kl. 8:30
Þorrablót fyrir nemendur 1. - 5. bekk
ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR - Sprengidagur
Nemendaverndaráðsfundur í Hs kl. 8:15
Smiðjudagar á unglingastigi
Stjórnendafundur kl. 14:45
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR - Öskudagur
Smiðjudagar á unglingastigi
Dans í sal Hs - Súsanna býður starfsfólki í danstíma
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR
Smiðjudagar á unglingastigi - Árshátíð um kvöldið fyrir 8. -10. bekk
Hugleiðsla og slökun hjá Hafdísi kl. 15:00. ATH breyting frá dagskrá. Skráning hjá deildarstjórum.
Stjórnendafundur kl. 14:45
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR
TAKK FYRIR VIKUNA OG GÓÐA HELGI :)
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Lífshlaupið fer vel af stað, Í grunnskólakeppninni hefur GRV tekið forystuna í sínum flokki, greinilegt að liðstjórar eru að standa sig.
- Allir lesa, sveitarfélagið Vestmannaeyjar eru í 2. -3. sæti til skiptis. Það er enn hægt að skrá lið inn á vefinn, ef það er gert passa að skrá aftur í tímann.
- Eldriborgarar bjóða okkur í heimsókn í Kviku miðvikudaginn 17. febrúar frá kl. 13:30 - 15:00. Einnig verður boðið uppá badminton í Íþróttahúsinu þennan dag kl. 14:00 - 15:00. Starfsfólk er beðið um að skrá sig í annað hvort, skráningarblöð verða á kaffistofum skólans.
- Hjúkrunarfræðingar skólans og starfsmannafélagið bjóða starfsfólki upp á blóðþrýstings- og sykurmælingu mánudaginn 15. febrúar í Bs og fimmtudaginn 18. febrúar í Hs milli kl. 9:00 og 11:00.
- Hugleiðsla og slökun hjá Hafdísi fimmtudaginn 11. febrúar kl. 15:00. ATH breyting frá dagskrá. Skráning hjá deildarstjórum.
- Þemadagar á unglingastigi 9. -11. febrúar, árshátíð 11. febrúar.
- Þorrablót í Hs mánudaginn 8. febrúar, tímasetningar verða auglýstar á skjá.
- Öskudagur er 10. febrúar,
- Konudagur er 21. febrúar.
Tilkynningar !!
- Menntamálastofnun verður með fund fyrir kennara og stjórnendur mánudaginn 15. febrúar kl. 13:45 - 15:45 vegna nýs námsmats í grunnskólum. Staðsetning auglýst síðar.
- Aðstoð við heimalestur og heimanám erlendra nemenda er á Bókasafni Vestmannaeyja, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 - 17:17.
- Menntaspjall á Twitter: http://ingvihrannar.com/menntaspjall/ mjög oft áhugaverðar umræður um skólamál.
- Fræðsluritið „Kennsluumhverfið – hlúum að rödd og hlustun“ http://www.ki.is/images/Skrar/Frettir/2014/raddbklingur.pdf.
- Leiðir til að draga úr hávaða hugmyndalisti http://www.ki.is/images/Skrar/Frettir/2014/rri_vegna_hvaa__sklum.pdf
Hrós vikunnar fá
Gáta vikunnar
Síldarmælieining er,
oft í bílum nefndur gat,
gripur þessi gefur smér,
goshver þetta heiti ber.
Svar við síðustu gátu
Slanga
Spakmæli vikunnar
Uppskrift
1 bolli jarðaber fersk eða frosin
1 msk chia
1 msk heitt vatn
2 tsk sukrin melis má sleppa
1 msk sítrónusafi
Allt sett í skál og blandað með töfrasprota. Þegar búið er að blanda allt þá er sultan sett í krukku og loka vel, inn í ísskáp. Ef sultan er of þunn þá er hægt að bæta hálfri tsk af chia við til að þykkja hana. Auðvelt ekki satt?