Föstudagspóstur
1.bekkur
Eitt uppbrot var þó í vikunni. Fórum fram á sal ásamt 2.-7.bekk og hlustuðum á Ævar vísindamann lesa upp úr nýju bókinni sinni - Þinn eigin tölvuleikur.
Í dag er dagur eineltis og fannst okkur við hæfi að taka það inn í umræður um Ýmu þar sem athyglinni er beint að því efni. Í dag er einnig blár dagur en einhvern vegin gleymdum við að auglýsa það í síðasta föstudagspósti. Við blönduðum því einelti og bláu saman og gerðum bláar kórónur með vinaorðum.
Næsta vika verður mikið uppbrot. Á mánudeginum er skipulagsdagur og skólinn því lokaður. Frístund er lokuð fyrir hádegi þann dag. Á þriðjudaginn skiptum við um lestrarbækur og söngvaflóðið verður á sínum stað. Einnig ætlar 10. bekkur að bjóða okkur á svæðið þeirra til að kynnast þeim og spila olsen olsen. 10.bekkur hefur það hlutverk að fylgja 1.bekk eftir á þemadögunum sem verða á miðvikudag, fimmtudag og föstudag.
Þemadagarnir verða að þessu sinni tengdir afmæli Naustaskóla. Allur skólinn vinnur á 6 stöðvum sem verða í gangi þessa þrjá daga. Eftir þessa þrjá daga verða allir búnir að fara á allar stöðvarnar. Þessir dagar eru svokallaðir uppbrotsdagar og því hefðbundin kennsla lögð niður. Þessa daga fara nemendur í mat 12:20 og 12:40 eftir því hvaða stöð þeir eru á. Eftir það fara allir beint í frístund. Þau börn sem eru ekki skráð í frístund hafa leyfi til að vera til að vera til 13:10 í frístund þessa daga og fara svo heim.
Minni á póst hér neðar frá foreldrafélaginu og stjórnendum Naustaskóla. Gaman að gera eitthvað saman með bekknum utan skólans og þar gefst tækifæri á því að þétta foreldrahópinn og kynnast.
Eigið góða helgi,
1.bekkjar teymið
Elín, Jódý, Sigga og Sunna
Skipulag foreldrasamstarfs í Naustaskóla
Ákveðið var með stjórn foreldrafélagsins að hafa fast tvo viðburði á skólaárinu með hverjum árgangi fyrir sig sem foreldrar sjá um. Átta til tíu forledrar þurfa að sjá um hvern viðburð.
Fyrri viðburður á að vera 18. nóv – 15. des en þá er lagt til að hver árgangur hittist og spili,skreyti piparkökur eða fari í bingó. Spil og bingó er hægt að fá lánað hjá skólanum en einnig geta nemendur komið með sín eigin spil að heiman. Ef ákveðið verður að hafa bingó þá koma foreldrar með einn vinning að heiman sem kostar hámark 300-500 krónum. Hver árgangur fær 10 þúsund krónur í styrk frá foreldrafélaginu fyrir hvern viðburð og er þá t.d. hægt að kaupa piparkökur fyrir þann pening.
Seinni viðburðurinn á að vera 2. – 31. mars en þá er ætlast til að foreldrar verði með útiveru með hópnum sem gæti falið í sér t.d. ferð í jólasveinabrekku, Kjarnaskóg eða annað skemmtilegt sem foreldrahópnum dettur í hug.
Ekki er ætlast til að hittingar bekkjanna taki meira en tvo klukkutíma en auðvitað er hverjum bekk frjást að ákveða það sjálf.
Þau sem vilja taka þetta að sér senda póst á kennara árgangsins eða senda á facebook síðu hópsins (messenger).
Foreldrafélaginu og stjórnendur skólans finnst þessar uppákomur vera gríðarlega mikilvægar fyrir bekkjarandann og vonumst við til að foreldrar taki vel í bjóða sig fram í þessi skemmtilegu verkefni.
Við vonumst til í framtíðinni að þetta skipulag muni halda sér næstu 10 árin a.m.k J
Kær kveðja
Stjórnendur Naustaskóla
Foreldrafélag Naustaskóla
Nói Fannar kveður
Á döfinni
11.nóv - Skipulagsdagur - skólinn lokaður. Frístund opin e.hádegi.
13. - 15. nóv. - Þemadagar