HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 4. TBL
DAGSKRÁ 18. - 22. september
MÁNUDAGUR 18. september
Heimsókn í BS frá Garðaskóla, kíkja í stofur milli kl. 8:00 og kl. 10:00
Göngum í skólann: Keppni um "Gullskóinn 2017" heldur áfram
Fagfundur í stærðfræði í vikunni bæði í HS og BS, fagstjórar boða til fundar.
ÞRIÐJUDAGUR 19. september
MIÐVIKUDAGUR 20. september
Stuttur fundur kl. 14:30 vegna samræmdra prófa í 7. bekk. BS
Stuttur fundur kl. 14:30 vegna samræmdra prófa í 4. bekk. HS
FIMMTUDAGUR 21. september
Samræmdpróf í 7. bekk- íslenska
Stjórnendafundur í BS kl. 15:00
FÖSTUDAGUR 22. september
Samræmdpróf í 7. bekk - stærðfræði
Söngur í Sal í HS
Óvissuferð :) :)
Svo er bara að vera "Slagggur að njódda og livva..............
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Keppni um Gullskóinn í 2. - 7. bekk stendur yfir 11.- 22.september. http://www.gongumiskolann.is/.
- Samræmdpróf hjá 7. bekk eru 21. og 22. september. Verða í tveimur lotum frá 9:00-10:20 og seinni lotan frá 11:00-12:20.
- Samræmdpróf hjá 4. bekk eru 28. og 29. september.
- Kennarar í 4. og 7. bekk, Upplýsingar um prófin er að finna á https://mms.is/samraemd-konnunarprof.
- Alþjóðlegi Skólamjólkurdagurinn verður haldinn 27. september. Allir nemendur GRV fá ókeypis mjólk þennan dag.
- Lestur við sama borð hefst þriðjudaginn 26. september. Tvítyngdir nemendur geta fengið aðstoð við heimalestur og heimanám á Bókasafni Vestmannaeyja á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á milli kl. 16:00 og kl. 17:00.
Tilkynningar !!
Við hvetjum fólk til að taka þátt í Plastlausum september sjá nánar á https://plastlausseptember.is/
Söngur í sal í Hs verður föstudaginn 22. september.
2. og 3. bekkur - kl. 9:50 - 10:20
4. og 5. bekkur - kl. 11:30 -12:00
5.ára og 1. bekkur - kl. 12:10 - 12:40
Stuðningsfulltrúar í Hamarsskóla eru beðnir um að skila inn vinnuskipulagi fyrir þriðjudaginn 19. september.
- Fyrsta lota í handboltaakademíu er 11. til 22. september.
- Vikuna 18.-22. september verði öll íþróttakennsla í Eimskipshöllinni
- Starfsmannafélag GRV: Búið er að hengja upp lista á kaffistofum fyrir þá sem vilja skrá sig úr félaginu. Við minnum samt á að starfsmannafélag skiptir máli upp á jákvæðan skólabrag :)
- UTÁ- þarfaplattar: Starfsfólk er vinsamlegast beðið um að koma plöttunum sem fyrst upp á veggi skólans.
- Starfsfólk Garðaskóla í Garðabæ kemur í heimsókn í BS þann 18. september.
- Vanda Sigurgeirsdóttir verður með fyrirlestur fyrir starfsfólk miðvikudaginn18. október.
- Ferð 7. bekkjar á Úlfljótsvatn verður 4. -6. október.
- Umferðafræðsla fyrir 1. bekk á vegum lögreglunar verður í mánuðinum. Nánar auglýst síðar.
Uppskrift vikunnar - Bounty-bitar heilsukroppsins
2 bollar kókosmjöl
1 bolli fljótandi kókosolía
Smá vanilluduft eða vanillustevía ef vill
1-2 matskeiðar lífrænt agavesíróp eða hunang
150 g dökkt lífrænt súkkulaði
Aðferð:
- Öllu hráefninu, nema súkkulaðinu, er hrært saman í stóra skál. Blöndunni er svo þjappað í form ofan á bökunarpappír. Þetta er haft í frysti í u.þ.b. 20-30 mínútur.
- Þá er „kakan“ tekin út úr frysti og skorin niður í hæfilega stóra bita. Súkkulaðið er svo brætt yfir vatnsbaði og bitunum velt upp úr súkkulaðinu.
- Bounty-bitunum er þá raðað á bökunarpappír og hafðir aftur inni í frysti í nokkrar mínútur þar til súkkulaðið er storknað.
Spakmæli vikunnar
“Ekki má gleyma að ég er alin upp við mikil gildi og heiðarleiki kemur þar fremstur og svo að standa sig. Að standa sig hvað sem á dynur.”
Vigdís Finnbogadóttir
Hrós vikunnar fá
Fá María, Unnur og BJössi fyrir einstaka þolinmæði og vinnusemi við að færa bókasafnið og námsverið :)
Við viljum einnig þakka jákvæð svör ykkar kennara og stuðningsfulltrúa við að taka við forföllum. Takk
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.