Föstudagspóstur - Unglingadeild
25. október 2019
Góðan daginn
Góð vika að baki sem endaði með afmæliskaffi afmælisbarna júlí - desember. Margir lögðu mikinn metnað í kökurnar og sumar þeirra voru mjög vel skreyttar. Hrós til allra fyrir vel heppnaðan kökudag.
Minni á viðtalsdaginn sem er á miðvikudaginn í næstu viku. Munið að bóka tíma inn á mentor og ef þið lendið í vandræðum er hægt að hafa samband við ritara (4604100).
Á föstudaginn í næstu viku, 1. nóvember, er nemendadagurinn. Þá verður hæfileikakeppni nemenda og einnig skorar 10. bekkur á starfsfólk að keppa á móti þeim í völdum íþróttagreinum. Við hvetjum þá sem hafa einhvern sérstakan hæfileika að skrá sig. Það er til dæmis hægt að vera með uppistand, syngja, dansa, spila á hljóðfæri eða annað skemmtilegt sem ykkur dettur í hug.
Takk fyrir vikuna og eigið góða helgi