NEMANDI VIKUNNAR
15.-22. maí 2017
Rebekka Lind Aðalsteinsdóttir
Nafn: Rebekka Lind
Gælunafn: Rebba
Bekkur: 7. bekkur
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í skólanum? Íþróttir, valgreinar og smiðjur
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert? Ferðast með fjölskyldunni
Áhugamál: Fótbolti, skíði, baka
Uppáhaldslitur: Blár
Uppáhaldsmatur: Sushi
Uppáhaldssjónvarpsefni: Jane the Virgin
Uppáhaldstónlistaramaður/hljómsveit? Justin Bieber
Uppáhaldsfótboltalið/fótboltamaður? Liverpool/Fanndís Friðriksdóttir
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Íþróttakennari
Ef þú gætir ferðast til hvaða lands sem er, hvaða land myndirðu velja og hvers vegna? Hawaii – hljómar spennandi
Ef þú verður fræg þegar þú verður stór, fyrir hvað myndirðu vilja verða fræg? Fótbolta
Hvaða reglu heimafyrir myndirðu breyta ef þú gætir? Ekki neinni
Ef þú gætir gefið eina gjöf til allra barna í heiminum, hvað myndirðu gefa? Lyf til að lækna sjúkdóma
Ef þú gætir fundið eitthvað upp til að auðvelda líf fólks, hvað myndi það vera? Vélmenni sem aðstoða við heimilisstörfin
Ef þú gætir ferðast til baka 3 ár aftur í tímann, hvaða ráð myndirðu gefa þér? Að vera duglegri að læra
Við þökkum Rebekku Lind kærlega fyrir skemmtileg svör.