Fréttabréf Vesturbæjarskóla
Fréttir og upplýsingar um skólastarfið í Vesturbæjarskóla
Samsöngur alla föstudaga
Samsöngur heldur áfram á föstudagsmorgnum kl. 8:40-9:00 og foreldrar eru ávallt velkomnir að taka þátt með okkur.
Vinavika 7. - 11. nóvember
Í nóvember er okkar árlega vinavika. Í vinavikunni hittast vinabekkir og vinna saman ýmis verkefni. Vinavikan er venjulega haldin í kringum 8. nóvember sem er dagur gegn einelti. Af því tilefni er sérstök áhersla lögð á fræðslu og umræðu um skaðsemi eineltis og mikilvægi góðra samskipta, virðingar og jafnréttis.
Hugmyndir að skólapeysum
Fréttir frá Réttindaráði
Það sem verið var að skoða í þessari úttekt var:
Er Barnasáttmálinn sýnilegur? Eru bekkjarsáttmálar sýnilegir? Er eineltishringurinn sýnilegur? Eru bekkjarfundir haldnir einu sinni í viku? Í úttektinni kom fram að á nokkrum stöðum vantar plaköt og í einhverjum hópum þarf að passa betur að bekkjarfundir séu haldnir vikulega. Réttindaráð gaf kennurum og börnunum viku til að gera úrbætur og fer aftur í úttekt í næstu viku í þá bekki sem ekki uppfylltu allar kröfur.
Forvarnarstarf og aðgerðir gegn einelti
Við erum réttindaskóli Unicef þar sem markmið er að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins. Rannsóknir sem gerðar hafa verið í meira en 1.600 Réttindaskólum hafa sýnt fram á jákvæð áhrif á skólastarf. Dregið hefur úr einelti og ofbeldi í skólunum, nemendum líður betur og þeir sýna meira umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika. Réttindafræðsla getur haft þau áhrif á börn að þau berjist frekar fyrir réttlæti og jafnrétti og verði líklegri til að þora að grípa til jákvæðra aðgerða til að vernda og styðja réttindi annarra.
Þegar upp kemur grunur um einelti eða alvarlegan samskiptavanda
Við skólann starfar Lausnateymi sem tekur til umfjöllunar mál er varða samskiptavanda og líðan barna. Lausnateymið aðstoðar kennara við að vinna í slíkum málum sem upp koma í samstarfi við foreldra.
Við foreldra um að hafa samband við kennara eða skólastjórnendur ef grunur vaknar um einelti. Einnig bendum við á tilkynningarhnappinn á heimasíðunni okkar sem við vorum að opna fyrir https://vesturbaejarskoli.is/skolinn/tilkynnaeinelti/
Við hvetjum foreldra að horfa á þetta stutta fræðslumyndband frá Vöndu Sigurgeirsdóttur þar sem hún ræðir um forvarnir, einelti og samskipti og hlutverk foreldra https://vimeo.com/showcase/7752078/video/475098319
Skilaboðin eru að saman getum við hjálpast að við að uppræta einelti með samstarfi, forvörnum og jákvæðum samskiptum.
Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu er 16. nóvember sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og minnir okkur á stöðu íslenskunnar, gildi hennar fyrir þjóðarvitund og alla menningu. Þann dag hefst formlega undirbúningur barna í 7. bekk fyrir stóru upplestrarhátíðina sem haldin er hátíðleg í mars.
Dagur mannréttinda barna
Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember en þá er afmælisdagur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðadagur barna. Barnasáttmálinn er útbreiddasti mannréttindasamningur heims og kveður á um þau réttindi sem öll börn eiga að njóta.
Vesturbæjarskóli er Réttindaskóli Unicef. Markmiðið er að byggja upp lýðræðislegt umhverfi sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi. Barnasáttmálinn er hafður að leiðarljósi í öllu skólastarfinu og á að endurspeglast í samskiptum og öllum ákvörðunum sem teknar eru.
Barnaréttindavika og Barnaþing
Af tilefni af degi mannréttinda barna ætlum við að vera með heila Barnaréttindaviku dagana 14. - 18. nóvember. Þá ætlum við að vera með sérlega mikla réttindafræðslu og halda okkar annað Barnaþing þar sem börnin í skólanum fá tækifæri á að tala saman og segja sína skoðun á málum sem þau snerta. Börnunum verður skipt í barnaþingshópa, þvert á árganga, og fara umræður fram út um allan skóla. Börnin í 7. bekk fá það hlutverk að stýra umræðunum.
Markmið barnaþingsins er að styðja við 12. grein Barnasáttmálans sem fjallar um rétt barna til að taka þátt og hafa áhrif á ákvarðanatökur um mál sem þau varða og að tillit sé tekið til skoðana þeirra.
Starfsdagur 17. nóvember
7. bekkur fer á Reyki
Börnin í 7. bekk fara á skólabúðirnar á Reykjum 21. - 25. nóvember með kennurum sínum. markmið er:
- að auka samstöðu og efla samvinnu milli kennara og nemenda
- að auka félagslega aðlögun nemenda
- að þroska sjálfstæði nemenda
- að nemendur fáist við áður óþekkt viðfangsefni
- að nemendur kynnist nýju umhverfi og ólíkum lífsmáta
- að örva löngun nemenda til að athuga og rannsaka umhverfið og komast að niðurstöðu
- að auka athyglisgáfu nemenda
Lagt er af stað á mánudagsmorgni og komið heim eftir hádegi á föstudegi.