Vikan 31. jan. - 7. feb.
2-3 bekkur Naustaskóla
Kæru foreldrar/forráðamenn
Við viljum byrja á því að þakka ykkur fyrir samtölin á mánudag og þriðjudag. Stutt vika að baki og byrjuðum við á nýju þema um hringrásir í náttúrunni. Við byrjuðum á að fræða nemendur um hringrás vatns og unnum verkefni í tengslum við það.
Við tökum fagnandi á móti febrúarmánuði og höldum áfram að vinna með hringrásirnar í næstu viku.
Nætkomandi föstudag 7. febrúar er dagur stærðfræðinnar og munum við vinna skemmtileg stærðfræðiverkefni tengdum þessum degi á fimmtudaginn.
Bestu kveðjur og góða helgi
2-3 bekkjar teymið
Sigga, Vala, Emilía, Silvía, Hulda, Harpa, Erla og Karen