Fréttabréf skólanna
Virðing- Vellíðan - Árangur
Mars/Apríl 2023
Ég vona að allir hafi átt dásamlegt páskafrí.
Mars einkenndist af mikilli útiveru í báðum skólum.
Reykjahlíðarskóli fór í skíðaferð bæði í Kröflu og svo í Hlíðarfjall, báðar ferðinar gengu glimrandi vel og ótrúlega gaman að sjá hvað þeim sem voru að stíga sín fyrstu skref fór fljótt fram.
Gönguskíðin góðu voru vel nýtt og við fengum Landann í heimsókn og úr varð stórskemmtilegur þáttur þar sem má sjá nemendur leik-og grunnskólans þeytast um svæðið á skíðunum.
Eftir páskafrí hófst svo skólasund, elsti árangur leikskólans fór fyrstu tvo dagana með 1. bekk í sundkennslu. Þau stóðu sig frábærlega og stækkuðu eflaust um nokkur númer þessa tvo daga. Þessir fyrstu sunddagar hafa gengið mjög vel og við höfum verið mjög heppin með veður.
Síðasti dagur skólasunds verður svo 27. apríl.
Skólanir eru núna byrjaðir í nýju þema sem heitir "Fuglaþema". Þar verður lögð áhersla á grunnþáttinn Læsi með áherslu á Sjálbærni.
Hér er hægt að skoða námsvísinn fyrir Reykjahlíðarskóla: https://reykjahlidarskoli.is/wp-content/uploads/2023/01/namsvisar-vor-2023.pdf
og hér fyrir leikskólann Yl: https://ylur.leikskolinn.is/Skolastarfid/Namsvisir
Vorið er spennandi tími, við erum í nýju sveitarfélagi með möguleika á að skapa og móta nýjar hefðir, siði og reglur.
Ég hvet ykkur því öll til að mæta á íbúafund vegna nýrrar skólastefnu Þingeyjarsveitar. Þið hafið rödd og ykkar skoðun skiptir máli.
Við skólarnir í Þingeyjarsveit ætlum að leggja okkar að mörkum í að móta nýjar hefðir og í lok maí ætlum við að bjóða til okkar hinum skólunum í sveitafélaginu þar sem allir taka þátt í Þingeyjarleikunum. En þar stefnum við á að hrista saman hópana í æsispennandi ratleik.
Í haust byrjum við svo vetrarstarfið á að bjóða yngstu árgöngum sveitarfélagsins til okkar, og hinir tveir skólarnir taka á móti miðstigi og unglingastigi.
Sumarkveðjur,
Starfsfólk skólanna
Á döfinni
20. apríl Sumardagurinn fyrsti - skólarnir lokaðir
26. maí Íbúaþing í Skjólbrekku v. skólastefnu 20:00
24. apríl Leikskólinn lokar 15:00 v. fundar við gerð nýrrar skólastefnu
25. apríl Rugludagur í leikskólanum
1. maí Verkelýðsdagurinn - skólarnir lokaðir
2.-5. maí Vísindavika leikskólans
5. maí Skólaþing grunnskólans
19. maí Skipulagsdagur leikskólans - Leikskólinn lokaður þennan dag
25. maí Þingeyjarleikarnir
Skólastefna Þingeyjarsveitar
Ég hvet ykkur til að skrá ykkur á íbúafund vegna gerð nýrrar skólastefnun fyrir skóla Þingeyjarsveitar.
Ykkar sjónarmið skiptir máli
https://www.thingeyjarsveit.is/is/frettir-tilkynningar/enginn-titill-9
Email: anna@reykjahlidarskoli.is
Phone: 464-4749 464-4375