HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 17. TBL
DAGSKRÁ 5. JAN. - 9. FEB.
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR
Lífshlaupið alla þessa viku.
Nemendaverndarráðsfundur í BS kl. 9:00
Fundir með stuðningsfulltrúum í Hs kl. 8:00 og Bs kl. 11:00
Jóga hjá Svanhvíti í stofu 9 í BS. Þarf að skrá sig.
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR
Nemendaverndarráðsfundur í HS kl. 13:30
Náttúru- og samfélagsfræði kl.?
Badminton í Íþróttahúsinu kl.15:00
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR
Deildarfundir
Undirbúningur smiðjudaga á unglingastigi og öskudagur á miðstigi
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR
Stjórnendur verða á fundi í Þorlákshöfn, Óla Heiða verður í Hs og Unnur til staðar í Bs.
Fara yfir Vinnustund, góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Lífshlaupið hófst 31. janúar, búið að draga í lið og mikil keppni í gangi.
- Grunnskólakeppnin stendur til 13. febrúar, munum að skrá hreyfingu bekkjarins. Ekki hægt að skrá meira en 5 daga aftur í tímann !
- Ungt fólk könnunin verður lögð fyrir 8. -10.bekk 6. -8. febrúar.
- Öskudagur er miðvikudaginn 14. febrúar.
- Þorrablót fyrir 1. - 5. bekk verður mánudaginn 12. febrúar (bolludagur) í sal skólans. Kennarar og stuðningsfulltrúar í hverjum árgangi eru beðnir um að undirbúa skemmtiatriði fyrir nemendur :)
- Smiðjudagar á unglingastigi 13. -15. febrúar. Árshátíð unglingastigs 15. feb.
- Starfsdagur 26. febrúar.
Tilkynningar !!
- Kennarar í Hs, vinsamlegast látið skólaliða vita þegar nemendur eru inni í frímínútum.
- Ásta Lilja Gunnarsdóttir þroskaþjálfanemi er hjá okkur í starfsþjálfun fram að páskum.
- Námskeið hjá Hugarfrelsi verður í sal Hamarsskóla dagana 9. og 10. febrúar. Þeir sem ætla að taka þátt í námskeiðinu þurfa að skrá sig inn á www.hugarfrelsi.is
- Menntabúiðir verða í EYjum 19. febrúar í GRV.
- Þorgrímur Þráins. kemur 1. og 2. mars (sama plan)
- Vanda Sigurgeirsdóttir kemur 13. mars, með námskeið fyrir kennara frá kl. 13:00
- Munum að vera ekki að ganga um ganga skólans með opna kaffibolla með heitum drykkjum þegar börnin eru í skólanum. Það skapar hættu ! Lokuð kaffimál eru í lagi.
- Minnum umsjónarkennara að senda stjórnendum samantekt frá foreldraviðtölunum.
- Við biðjum allt starfsfólk að yfirfara Vinnustundina vikulega. Gott að gera áður en farið er í helgarfrí.
Afmælisbörn
Björg Ólöf Bragadóttir 4. febrúar
Heiðrún Lára 8. febrúar
Erna Valtýsdóttir 9. febrúar
Snorri Rútsson 10. febrúar
Spakmæli vikunnar
Fólk tekur ekki eftir því hvort það sé vetur eða sumar ef það er hamingjusamt.
- Anton Chekhov
Kjúklinga núðlusúpa
Bragðgóð kjúklinga núðlusúpa sem aðeins tekur 10. min og er hentug fyrir alla fjölskylduna.
Uppskrift f. 3-4
- 500 gr kjúklingur
- 150 – 200 gr eggjanúðlur
- 1/2 rauðlaukur, skorin í þunna strimla
- 1 rauð paprika, skorin í þunna strimla
- 2 vorlaukar, skornir í þunnar skífur
- 1 hvítlauksrif, fínsaxað
- 1/2 – 1 rautt chilli, kjarnhreinsað og fínsaxað
- 1 tsk ferskt engifer, rifið fínt
- 1,2 lítrar vatn
- 1 dl soyasósa
- 6 msk sæt chilisósa
- 1 msk sesamolía
- 1/2 límóna (lime)
- ferskt kóríander, saxað gróft
- salt og pipar
- sesamfræ, ristuð á þurri steikarpönnu
Skerið kjúkling og grænmeti eins og segir til í uppskriftinni. Snöggsteikið kjúklinginn í smjöri eða olíu þar til að hann tekur dálítinn lit.
Hellið vatninu og soyasósunni í stóran pott og látið suðuna koma upp. Setjið eggjanúðlur (ósoðnar), grænmeti, engifer og chili út í og látið sjóða í 2 mínútur. Bætið þá kjúklingnum út í ásamt chilisósu, sesamolíu, safanum úr límónunni, salti og pipar. Látið súpuna malla í 3-4 mínútur í viðbót eða þar til núðlurnar eru tilbúnar. Stráið yfir ristuðum sesamfræum og söxuðu kóríander og berið fram strax.
Hrós vikunnar fá
Stærðfræðikennarar fyrir skemmtileg verkefni á Degi stærðfræðinnar.
Dagskrá fyrir Lífshlaupið
Mánudagur 5. feb.
Jóga í stofu 9 í BS kl. 15:30, takmarkaður fjöldi.
Svanhvít sendir póst vegna skráningar í lok vikunnar.
Þriðudagur 6. feb.
Kl. 15:00 - 16:00 verður boðið upp á:
Badminton í Íþróttahúsinu, íþróttakennarar stjórna.
Mánudagur 12. feb.
Jóga í stofu 9 í BS kl. 15:30 - takmarkaður fjöldi. Svanhvít sendir póst vegna skráningar í lok vikunnar.
Miðvikudagur 14. feb
Opinn tími í Metabolic kl.17:05, starfsfólk skólans boðið að koma í kynningatíma.
Þriðjudagur 13.feb. Kl. 18:15 verður boðið upp á: Poundtíma hjá Siggu Stínu í Friðarbóli, ath lokaður tími fyrir starfsfólk skólans. Pound er æfingaprógram sem notast er við sérhannaða trommukjuða. Þarf að skrá sig, takmarkaður fjöldi. Verð 1000 kr
Mánudagur 19. feb. Sonja R. Martinez heilsunuddari verður með kynningu á heilsuvörum frá Hraundís í sal Hamarsskóla kl.15:00 .
Mánudagur 12. feb.
Mánudagur 19. feb.
Hjúkrunarfræðingar skólans bjóða. Starfsmönnum Barnaskólans upp á sykur- og
blóðþrýstingsmælingu á milli 8:00 og 10:00. Verður að koma fastandi í mælingu.
Fimmtudagur 15. feb
Fimmtudagur 22. feb.
Hjúkrunarfræðingar skólans bjóða starfsmönnum í Hamarsskóla upp á sykur- og blóðþrýstingsmælingu á milli 8:00 og 10:00. Verður að koma fastandi í mælinguna.Miðvikudagur 21. feb.
Heilsukaffi starfsfólks – mætum endilega með eitthvað hollt og sláum upp hlaðborði í hvorum skóla fyrir sig.
Einnig verður boðið uppá óvæntta gleðiöndun á kaffistofum skólans.
GRV fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.