Föstudagsfréttir
vikuna 17. - 21. febrúar
Bolludagur
Gos, sódavatn, snakk eða nammi er ekki leyfilegt.
Sundrúlluskipti á mánudaginn í 6.bekk
Vetrarfrí
Í næstu viku eru einungis tveir skóladagar áður en við förum í vetrarfrí! Við munum enda vikuna á sprengidegi :)
Saltkjöt og baunir - túkall!
Nemendur mæta svo galvalskir aftur í skólann þann 2.mars hressir og kátir
Minjasafnið
Stóra upplestrarkeppnin
Flest allir nemendur tóku þátt og stóðu sig prýðisvel, við erum afskaplega ánægð og stolt af þessum flottu nemendum. Allir nemendur fengu viðurkenningu að lokinni keppni fyrir þátttöku sína.
Sigurvegarar keppninnar eru Ragnar Orri og Sólon, varamaður Naomí. Þau munu keppa fyrir hönd Naustaskóla þann 4.mars í Menntaskólanum við alla hina grunnskólanna á Akureyri.
Útivera í 7.bekk
Vikusamantekt
Það hefur verið mikil spenna í loftinu og margir nemendur heldur órólegir. Teljum við sennilegast ástæðuna fyrir því að það styttist óðum í vetrarfrí.
Við erum að fara byrja á fullu í árshátíðarundirbúningi - munu næstu vikur einkennast af þeirri vinnu. Að því sögðu hliðrast hefðbundið skólastarf að einhverju leyti.
Einnig munu dönsku kennaranemarnir hefja kennslu í mars í báðum bekkjum - þá aðallega í dönsku og ensku.
Á mánudag og þriðjudag munu báðir bekkir þreyta dönskukönnun.
Við óskum öllum góðrar helgar
Arna Ýr, Áki, Harpa, Heiða, Herdís, Gunni, Inga Vala, Kata og Paula