Vikupistillinn
Tímabilið 25. febrúar - 3. mars 2019
Heilræði vikunnar
"Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig"
Megas
Punktar
- Muna að skila vikuáætlunum inn á sameign í möppuna „Áætlanir/Vikuáætlanir“.
- Munum eftir að leggja inn HÆTTU, GAKKTU, SEGÐU FRÁ, sjá Stöndum saman lesefni, kynning frá starfsmannafundi. Það má einnig nálgast í SMT möppunni. Stjórnendur munu koma í stofur með blað til að hengja upp í öllum heimastofum.
- Lestrarátak Ævars vísindamanns er frá 1. janúar til 1. mars fyrir nemendur í 1. - 10. bekk.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu nemandans.
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
Mánudagur 25. febrúar
- Nemendur í 9. bekk fara að Laugum.
- Verið - elsta deild - pógómót
Þriðjudagurinn 26. febrúar
- Upplestarhátíðin í Hvaleyrarskóla - nemendur í 7. bekk og 6. bekkir koma í salinn sem áhorfendur.
- Enginn samvera í miðdeild.
- Kl. 13:20 fá nemendur í 10. bekk kynningu frá Keili sem er að hefja kennslu á nýrri braut til stúdentsprófs með áherslu á tölvuleikjagerð.
- Á fundartíma eru teymisfundir.
Miðvikudagurinn 27. febrúar
- Samvera hjá yngstu deild sem nemendur í 4. bekk sjá um.
- Ljósmyndataka hjá nemendum í 7., og 10. bekk. Sjá skipulag hér
- Verið - miðdeild - ping pong mót.
- Verið - elsta deild - opið hús og spil.
Fimmtudagurinn 28. febrúar
- Ljósmyndataka hjá nemendum í 1. og 4. bekk. Sjá skipulag hér
- Á fundatíma kl. 15:00 verður Kristrún með seinni hlutann af erindinu frá því á starfsdaginn í fyrirlestarsalnum.
Föstudaginn 1. mars
- Lestrarátaki Ævars vísindamanns lýkur.
- Fundur hjá SMT teyminu kl. 14:00.
Árshátíð Hafnarfjarðar laugardaginn 2. mars
Sumir komnir sko í gírinn. Spurning hvort einn hafi farið aðeins of geyst.
Frá skipulagsdeginum
Frá skipulagsdeginum
Frá skipulagsdeginum
Fréttir frá Bjargi
- Nýr nemandi er að koma í Bjarg en hann heitir Law Hsen Ahmed og er frá Kúrdistan. Hann fer í 10. GB.
- Þess má geta að Milo í 3. MI og móðir hennar eru komnar með landvistarleyfi.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Afmælisdagar í febrúar og mars
Dísa á afmæli þann 28. febrúar. Andrea á afmæli þann 9. mars, Íris þann 10. mars, Kristján B. þann 12. mars, Freyja þann 14. mars, Guðrún Árný þann 23. mars og Nína þann 27. mars. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Á döfinni
- Við erum að vinna að heilsuhorni.
- Kennaraneminn Tinna Líf Baldvinsdóttir sem er á 3. ári, verður hjá Ingu Völu og 3. IVJ frá lok janúar til loka mars.
- Innritun nemenda á starfsbrautir í framhaldsskólum haustið 2019 fer fram dagana 1.-28. febrúar nk.
Þann 4. mars fara nemendur í 7. bekk að Reykjum.
Þann 5. mars fara nemendur í 10. bekk í heimsókn í Flensborgarskólann.
Forinnritun nýnema sem eru að útskrifast úr 10.bekk er 8. mars – 13. apríl.
Samræmd könnunarpróf verða hjá nemendum í 9. bekk þann 11., 12. og 13. mars.
Þann 15. mars fara nemendur í 9. og 10. bekk á Íslandsmótið í iðn- og verkgreinum og framhaldskólakynningu.
Þann 20. mars er Skólahreystikeppnin í íþróttahúsinu að Ásvöllum.
Þann 21. mars kl. 14:00 - 15:30 er stærðfræðikeppni grunnskólanna í Hafnarfirði haldin í Flensborgarskólanum. Keppnin er ætluð fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk.
Þann 26. mars er boðsundskeppni grunnskólanna í Laugardalslaug.
Þann 26. mars kl. 12:40 fá nemendur í 10. bekk fræðslu frá Fjármálaviti.
Námskeið á vegum Fræðslu- og frístundasviðs
- Orðagull smáforrit - fyrir kennara á ynsta stigi, sérkennara og kennara tvítyngdra nemenda á öllum aldri. Haldið í fyrirlestarsal Hraunvallaskóla þann 4. mars kl. 14:30 - 16:00.
- Widgit Online - Veflægt forrit fyrir sjónrænt skipulag. Veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Allir leik- og grunnskólar Hafnarfjarðar hafa aðgang að kerfinu. Á vinnustofunni verður farið yfir grunnvirkni og í kjölfarið munu þátttakendur sjálfir útbúa efni. Haldið í Viðistaðaskóla (tölvustofa) mánudaginn 4. mars kl. 14:30 - 16:00.
- UT menntabúðir - jafningjafræðsla - samræða - tengslanet. Verður haldið í Víðistaðaskóla mánudaginn 11. mars kl. 14:30 - 16:00.
Námslotur í InfoMentor
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200