Vikupistillinn
Tímabilið 16. - 22. september 2019
Heilræði vikunnar
Snúðu andlitinu að sólinni
og skuggarnir munu falla fyrir aftan þig.
Walt Whitman
Sýnum ábyrgð við notkun síma og annarra snjalltækja
Punktar
- Munum eftir spurningamerkinu í Mentor til að ná okkur í upplýsingar og myndbönd
- Hér má nálgast verkefnaskrá ársins ásamt fundaskipulagi ársins.
- Kjósa á fulltrúa bekkja (4. - 10. b) í umhverfisráð, einn aðal og annan til vara.
- Að lokinni ávaxtastund. Mikilvægt er að boxin undan ávöxtunum/grænmetinu skili sér fljótt upp í eldhús. Nýta umsjónarnemendur í að skila boxum.
- Göngum í skólann hefst 4. september, hvetjum nemendur okkar til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla.
Sjá nánar hér: http://www.gongumiskolann.is/ , á síðunni koma fram upplýsingar um ýmsa viðburði sem hægt er að tengja við hreyfingu t.d.
- Í september á að prófa alla nemendur í 2. - 10. bekk með Lesferlinum og þá á að lesskima alla nemendur í 1. bekk.
- Kennarar munið að fara yfir SMT reglur vikunnar með nemendum.
- Munum eftir að leggja inn HÆTTU, GAKKTU, SEGÐU FRÁ, sjá Stöndum saman lesefni, kynning frá starfsmannafundi. Það má einnig nálgast í SMT möppunni
- Widgit Online er er veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta hafið samband við Steinar
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
- BH-Gestir er nýtt þráðlaust net sem er fyrir einkatæki starfsmanna, nemenda og gesta. Netið er opið frá kl. 6:00 - 18:00. BH-Mobile fer að loka.
Mánudagur 16. september
- Dagur íslenskrar náttúru. Minnum á tölvupóst með verkefnum sem hægt er að nýta.
- Dönsku nemendurnir koma í heimsókn til nemenda í 10. WR.
- Verið - miðdeild - 7. bekkjarkvöld.
- Verið - elsta deild - opið hús
Þriðjudagur 17. september
- Samvera.
- Heimanám á vegum Rauða krossins er á bókasafninu frá kl. 13:30 - 15:00. Hvetja nemendur til að nýta þennan tíma.
- Á fundartíma eru deildarfundir.
Miðvikudagur 18. september
- Samvera.
- Fundur nemendaverndarráðs er kl. 14:05 - 14:55 inni hjá námsráðgjafa.
- Verið - miðdeild - foosballmót.
- Verið - elsta deild - Velkomstball þar sem dönsku gestirnir eru boðnir velkomnir.
Fimmtudagur 19. september
- Samræmd könnunarpróf hjá 7. bekk í íslensku.
- Skólastjórnendafundur kl. 9:00.
- Fundur í eineltisteym SMT kl. 14:00 - 15:00, inni hjá námsráðgjafa.
- Á fundartíma eru teymisfundir.
Föstudagur 20. september
- Samræmd könnunarpróf hjá 7. bekk í stærðfræði.
- Suðurbæjarlaug er lokuð en nemendur fara í Ásvallalaug allir hópar.
- Verið - miðdeild - spilakvöld - koma með spil að heiman.
- Verið - elsta deild - spilakvöld.
Útikennsla í Náttúrugreinum
Frá útikennslu í náttúrugreinum í unglingadeild.
Mælingarferð
Nemendur í 5. bekk fóru og mældu þær plöntur sem þeir gróðursettu í vor. Allar höfðu þær stækkað.
Mælingarferð
Nemendur í 5. bekk fóru og mældu þær plöntur sem þeir gróðursettu í vor.
Inga Sigríður 10. MS er nýr formaður nemendaráðs
Nýr formaður var kosinn Inga Sigríður Jóhannsdóttir í 10. MS. Framboðsræður voru á sal skólans fyrir kosningarnar þar sem frambjóðendum gafst kostur á að láta fundarmenn vita hvers vegna þeir ættu að kjósa þá ;)
Nýr varaformaður nemendaráðs
Nýr varaformaður er Luciana Fernandez Gomez í 10. WR.
Nýr ritari nemendaráð
Nýr ritari nemendaráðs er Karítas Sól Þórisdóttir í 10. WR.
Tiltekt vikunnar
Við biðjum nemendur í 7. SL undir stjórn Svandísar umsjónarkennara og taka til á skólalóðinni.
Fréttir frá Bjargi
Nýr nemandi byrjar í Bjargi á næstu dögum. Hann heitir Ahmad Dana Khalid og kemur frá Írak. Hann mun fara í 10. WR. Við bjóðum hann velkominn í Hvaleyrarskóla.
Ytra mat Menntamálastofnunar
- Hér eru upplýsingar um ytra mat Menntamálastofnunar.
- Hér má nálgast talglærurnar sem sýndar voru á kennarafundinum.
- Hér má nálgast matsblað fyrir vettvangsathugun í kennslustund hjá kennurum.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar að vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Afmælisdagar í september
Marta Gígja á afmæli þann 7. september, Hrönn G. þann 12 september, Inga Dóra þann 15. september, Ásta þann 16. september, Guðrún H. þann 21. september, Hafdís þann 22. september, Hrönn Á. þann 23. september og Aðalheiður þann 26. september. Við óskum þeim innlega til hamingju með afmælið :-)
Á döfinni
- Samræmd könnunarpróf fyrir 4. bekk eru 26. og 27. september.
- Heimsókn danskra nemenda til nemenda í 10. bekk sem hér segir:
- *10. WR þann 16. - 22. september.
- *10. MS þann 23. - 30. september.
- Október er mánuður myndlistar.
- Í fyrstu vikuna í október verða matsmenn frá Menntamálastonun í heimsókn.
- VR kynning fyrir nemendur í 10. bekk kl. 12:40 þann 1. október.
- Forvarnardagurinn er 2. október sem nemendur í 9. bekk taka þátt í , frá kl. 10 - 12.
- Bóka- og bíóvika 11. - 22. október.
- Vetrarfrí 21. og 22. október.
- Námsviðtöl 30. október.
- Nemendur í 6. bekk eru Logos skimaðir í október og nóvember.
- Í október eru nemendur í 1. bekk framburðarskimaðir og einnig lesskimaðir.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200