Fréttabréf Borgaskóla
2. árg 1. tbl
Jólakveðja frá Borgaskóla
Um leið og við þökkum fyrir gott og gjöfult samstarf á árinu sem er að líða, viljum við senda hugheilar jólakveðjur til nemenda okkar og aðstandenda með ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Við hlökkum til að taka á móti nemendum okkar 4. janúar skv. stundaskrá.
Kærar kveðjur frá starfsfólki Borgaskóla
Bjartasta stjarnan
Helgileikurinn „Bjartasta stjarnan“ var settur á svið í fyrsta skipti hér í Borgaskóla þann 15. desember. Það voru nemendur í 1. og 7. bekk sem léku og sungu undir styrkri stjórn Svans tónmenntakennara og Þuríðar Ágústsdóttur en þeim til halds og trausts voru umsjónarkennarar bekkjanna. Aðventan var nýtt til æfinga og það var mjög gaman að sjá hversu fljótt nemendur lærðu lögin og sín hlutverk. Þessi samvinna skilaði sér með hátíðlegri sýningu sem var sýnd tvisvar sinnum fyrir aðra nemendur og starfsfólk skólans. Hér má finna nokkrar myndir frá sýningardegi.
Jólakort til nágranna
Jólakort til nágranna
Jólakort til nágranna
Nemendur í 7. bekk glöddu nágranna
Á aðventunni opnuðu nemendur í 7. bekk dagatalið frá SOS Barnaþorpi sem er í senn mjög fræðandi og uppspretta umræðu um að staða okkar og líðan sé misjöfn og þá sérstaklega um jólin. Kom þá upp sú hugmynd að gott væri að dreifa kærleikanum og þá sérstaklega jólaandanum. Margir upplifa söknuð á þessum tíma, sumir veikir, jafnvel í einangrun vegna veirunnar, hafa áhyggjur af ýmsum ástæðum og því væri gott að koma þeim skilaboðum til nágranna skólans að sama hvernig ástandið er þá eru jólin alltaf jólin og kærleikurinn er alltaf númer eitt um hátíðarnar.
Nemendur bjuggu því til jólakort sem voru föndruð af miklum móð og dreifðu þeim handahófskennt til nágranna skólans. Skilaboðin voru einföld en öll kortin hófust á orðunum: „Kæri nágranni“. Nemendur völdu svo sjálfir boðskapinn eins og t.d. „þú ert frábær“, „hafðu það sem best um jólin“, „Gleðileg jól og farsælt komandi ár“, „njóttu jólanna“ og fleira í þessum dúr en svo lauk þeim á þessum orðum: „Jólakveðja frá 7. bekk í Borgaskóla“.
Viðbrögðin við þessu hafa verið miklu meiri og jákvæðari en okkur grunaði og ánægjulegt að sjá fólk sem fékk jólakort frá nemendum deila þeim með öðrum nágrönnum sínum í Grafarvogi í gegnum Facebook síður sem tengir þá saman. Það má með sanni segja að nemendum í 7. bekk hafi tekist að gleðja nágranna Borgaskóla.
Hurðaskreyting ársins í Borgaskóla
Hin árlega hurðaskreytingarkeppni var á sínum stað í desember. Það er að skapast sú skemmtilega hefð þar sem nemendur skreyta hurðarnar á stofunum sínum. Starfsfólk skólans kýs svo þá hurðaskreytingu sem fær titilinn "hurðaskreyting ársins".
4. bekkur hlaut að þessu sinni viðurkenninguna. Þemað hjá þeim var ævintýri. Nemendur hlustuðu saman á ævintýrið um sætabrauðsdrenginn og gerðu svo öll sinn sætabrauðsdreng með myndum af þeim sjálfum. Hurðin sjálf var piparkökuhús í anda ævintýrisins um Hans og Gretu.
Bráðskemmtilegt verkefni, til hamingju með sigurinn 4.bekkur.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðana
Einn þáttur innleiðingarferlis er að stofna Réttindaráð en í 12. grein Barnasáttmálans segir að öll börn eigi rétt á að taka þátt og hafa áhrif í málum er varða þau með einum eða öðrum hætti. Með Réttindaráði gefum við börnum skólans enn betra tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri og hafa áhrif á skólastarfið.
Í innleiðingarferlinu í Borgaskóla er öflugt Réttindaráð skipað nemendum 1.-7. bekkjar og hefur ráðið nú þegar lagt fyrir öryggiskönnun og þekkingakönnun. Tilgangur öryggiskönnunar er að skoða hvar nemendum líður vel í skólanum og hvar þeir eru óöruggir. Tilgangurinn er að bæta úr ef þarf. Með þekkingakönnun er verið að meta þekkingu nemenda og starfsfólks á Barnasáttmálanum og er markmiðið að loknu innleiðingarferli að þekking hafi aukist á Barnasáttmálanum. Næst á dagskrá er að leggja fyrir aðgengiskönnun.
Hátíðarfundur Réttindaráðs Borgaskóla
Hátíðarfundur Réttindaráðs Borgaskóla
Hátíðarfundur Réttindaráðs Borgaskóla
Hátíðarfundur Réttindaráðs Borgaskóla
Afrakstur úr myndmenntatímum
Valgreinar fyrir 6. -7. bekk á skólaárinu 2021-2022
þýska,
djembe trommur,
glerlist,
fimleikar,
goðafræði,
kvikmyndagagnrýni,
og hikmyndagerð.
Hikmyndagerð í valgreinum
Hikmyndagerð í valgreinum
Hikmyndagerð í valgreinum
Hikmyndagerð í valgreinum í 6. og 7. bekk
Í haust hefur nemendum í 6. og 7.bekk staðið til boða val sem stendur í 5 vikur í senn. Þar hefur ýmislegt verið í boði og þar á meðal voru um 12 nemendur í Stop Motion (hikmyndagerð). Þar öðluðust t.d. PlayMobil fígúrur líf og ferðuðust út í geim og til baka eða börðust í kastala við dreka. Bílar flugu og sjónhverfingar voru festar á filmu. Hér má sjá dæmi um eitt myndband.
Nýsköpunarverkefni í 1. bekk
Í nóvember og í desember er 1. bekkur búinn að vera að vinna að nýsköpunarverkefnum hjá umsjónarkennurum sínum. Nemendur byrjuðu á því að hanna og teikna mynd af jólaskrauti sem var síðan skannað inn í Glódísi (laserskurðarvél skólans). Með aðstoð Glódísar skárum við jólaskrautið út nákvæmlega eftir teikningum nemenda. Því næst var skrautið málað og gat borað fyrir bandspotta til þess að hægt sé að hengja það á jólatré fjölskyldna nemenda. Nemendur skreyttu pappír því sú hugmynd kviknaði í samtali við nemendur að gaman væri að pakka inn jólaskrautinu og gleðja foreldra og forráðamenn síðar í desember.
Einnig erum við að vinna með forritið Sketches School í iPad þar sem nemendur teikna snjókorn og skera það út í Cricut sem er einfalt og skemmtilegt skurðartæki sem sker út pappír, vínil, ýmis textílefni og margt fleira. Þetta er undirbúningur fyrir frekari nýsköpunarvinnu nemenda og vinnu með forritið Sketches School. Stefnan er að skera frekari afrakstur út í Glódísi á nýju ári.
Með þessari vinnu erum við að tengja saman handverk og stafræna tækni. Nemendur eru mjög áhugasamir og skapandi í vinnu sinni. Við erum að prófa okkur áfram með mjög góðum árangri. Hér að ofan má sjá sýnishorn af vinnu nemenda.
Skapandi hönnun og smíði
Það hefur verið líf og fjör í smíðastofunni og nemendur smíðað marga fallega hluti. Meðfylgjandi myndir sína nokkra hluti sem smíðaðir voru á haustönninni.
2. bekkur í heimsókn á Bókasafnið í Spöng
Í aðdraganda jóla höfum við í 2. bekk leitast við að skapa rólegar og notalegar stundir. Bókasafnið í Spöng var heimsótt á dögunum þar sem lesin var sagan um Pétur og Brand. Að því loknu gátu nemendur lesið, púslað, litað eða spilað. Skemmtileg heimsókn og kunnum við bókasafninu okkar bestu þakkir fyrir góðar móttökur. Inn á milli verkefna gáfum við okkur tíma til að föndra og hlusta á jólalög.
100 bækur lesnar í 5. bekk
Nemendur í 5. bekk voru í lestrarátaki. Markmiðið var að lesa 100 bækur í hvorri stofu. Þegar því markmiði var náð fögnuðu nemendur með því að taka tæki að heiman í skólann. Mikil keppni myndaðist og sýndu nemendur mikinn áhuga á lestri.
Alþjóðlega barna kvikmyndahátíðin
Nemendur og kennarar í 5. bekk fóru á Alþjóðlegu barna kvikmyndahátíðina sem var haldin í Bíó Paradís dagana 28. okt – 7. nóv. Þau sáu myndina Muggur sem fjallar um dreng sem upplifir margt óvenjulegt þegar foreldrar hans skilja. Bæði nemendur og kennara höfðu gaman af þessu uppbroti frá hefðbundnum skóladegi og áttu góða samverustund utan veggja skólans.
7. bekkur á Árbæjarsafni
Nemendur í 7. bekk heimsóttu Árbæjarsafn á aðventunni þar sem nemendur fengu að kynnast og upplifa jólin eins og þau voru haldin hátíðleg árið 1959. Þessi fræðsla vakti mikla lukku þar sem nemendur fengu bæði að skreyta jólatréð í stofunni ásamt því að opna gjafir sem þóttu hefðbundnar á þessum tíma. Margar gjafir hafa lítið breyst og var mjög gaman að heyra nemendur spyrja bæði hvar þeir gætu fengið þessa gömlu flottu hluti og eins hvort þeir mættu eiga flottu bílana sem voru í mörgum pökkum. Bækur voru auðvitað vinsælar rétt eins og núna þannig að þó tíminn líði hratt þá er margt við íslensk jól sem breytist lítið eða hægt. Annað dæmi um slíkt er þessi endalausa bið eftir því að fá að opna pakkana og kannski eru margir sem lesa þetta og hugsa til þess tíma þegar Coca Cola var blandað út í hina vinsælu jólablöndu, Malt og Appelsín. Þetta ætla margir að prófa í fyrsta inn þessi jólin.
Leiðsagnarnám í 6. bekk
Í vetur höfum við komið upp námsveggjum í skólastofunum þar sem nemendur geta sótt sér upplýsingar um það sem við erum að vinna með þá stundina og nýtt það í verkefnavinnu. Á námsveggjunum eru einnig fyrirmyndarverkefni þar sem nemendur geta séð hvernig vel unnin verkefni líta út. Nemendur í 6. bekk eru að hægt og rólega að efla sjálfstæði sitt í námi með því að sækja upplýsingar sjálf af veggjunum.
3. bekkur
Nemendur unnu með Komdu og skoðaðu eldfjöllin í vetur. Lokaverkefnið var að búa til plakat með upplýsingum um eldfjall á Íslandi. Nemendur fengu að skoða tvö plaköt þar sem annað var fyrirmyndarverkefni og hitt ekki. Miklar umræður voru um bæði plakötin og að lokum komst niðurstaða um hvað prýðir fyrirmyndarplakat þar sem hæfniviðmið verkefnisins voru höfð í huga m.a. skýr og vönduð skrift, texti með góðum orðaforða sem segir frá eldfjallinu, fyrirmyndarmálsgreinar, hvar eldfjallið er á Íslandi, hvað eldfjallið heitir, fallega myndskreytt og plássið vel notað á plakatinu og auðvitað merkt nöfnum þess sem vinna það. Það var líka lögð áhersla á samvinnu í hópnum og að allir taki þátt. Nemendur stóðu sig frábærlega og plakötin urðu svo sannarlega til fyrirmyndar.