Stiklur
Nýtt deiliskipulag .... :)
7. - 10. bekkur
Frá og með miðvikudegi verða 7. – 10. bekkur eingöngu í fjarkennslu. Á morgun þriðjudag mæta 7. – 10. bekkur ekki skólann, en taka fjarkennslutíma frá 12:00. Kennarar unglingastigs nota þá þriðjudagsmorgun til að skipuleggja fjarkennslutímana.
5. og 6. bekkur
Hópur Viktoríu fer í stofu 403, frá og með miðvikudegi.
Sameiginlegi hópur 5. og 6. bekkjar fer í stofu 401, frá og með miðvikudegi.
Þessir hópar nota þá klósettin á unglingastigsgangi og starfsmennirnir kaffistofuna í námsveri.
Hóparnir ganga inn um aðalinnganginn á 3. hæð.
5. ÚMÁ heldur sinni stofu, klósett á 3. hæð og kaffiaðstaða í Vinaseli. Hópurinn kemur inn að norðanverðu.
3. og 4. bekkur
Allt óbreytt hjá 3. bekk
Hjá 4. bekk er óbreytt staða hjá nemendum. Starfsfólk fái kaffiaðstöðu í Vinaseli, frá og með miðvikudegi.
Hóparnir á 2. hæð
Stebbuhópur komi inn að austanverðu, frá og með miðvikudegi
Berglindarhópur komi inn um aðalinngang, frá og með miðvikudegi
Klöruhópur komi inn um neyðarhurð í SV-horni, frá og með miðvikudegi
Matur (frá miðvikudegi)
10:50 tveir hópar frá 1. og 2. bekk
11:10 1 hópur frá 1. og 2. bekk + 3. bekkur
11:30 4. bekkur, að loknum mat fara hóparnir í sínar stofu og heim 12:15
11:50 5. bekkur og 6. VG, að loknum mat fara hóparnir í sínar stofu og heim 12:30
Samgangur starfsfólks
Samgangur starfsfólks á að vera í algjöru lágmarki og helst enginn milli mismunandi svæða; hæð tvö – hæð þrjú – og tveir hópar á hæð fjögur. Kaffisvæði eru þá í textílstofu (2. hæð), á Vinaseli (fyrir 4. bekk og 5. ÚMÁ), í námsveri unglingastigs(6. VG og 5. JT) og í starfsmannaálmu (3. GS og aðrir óupptaldir). Forðast skal að of margir séu í einu rými í einu. Starfsfólk fari strax við komu í skólann á sitt svæði. Við verðum að vera dugleg að virða 2 metra regluna. Þetta þyrfti að byrja strax, nema hvað varðar kaffiaðstöðu...frá og með miðvikudegi.
Myndmennt, íþróttir o.fl
Íþróttir verða úti, nema veður leyfi ekki, úrhellisrigning og vindur yfir 12m/sek, ræða við Viðar veðurfræðing. Willi og Amelía munu þurfa að skipta sér. Annað þeirra mun þá sjá um 1. – 3. bekk og hitt 4. – 6. Frá og með miðvikudegi, þau munu svo áfram vera þessum hópum innan handar við kennslu.
Starfsfólki sem er óráðstafað er bent á að koma til Viðars og ræða hvar þeirra kröftum verður best varið.
Vinasel
Vinasel lokar klukkan 15:00 fyrir aðra en forgangshópa, frá og með miðvikudegi.