Múkk, múður og miklu meira!!
Menntabúðir
MOOC og Moodle
Þriðjudaginn 25. febrúar kl. 16-18 verða haldnar menntabúðir í stofu H-207 í aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. (Smelltu á dagsetninguna til að skrá þig).
Mikil vakning er í tengslum við fjarnám, vefnám, spjaldtölvur, innleiðingu nýrrar aðalnámskrár svo eitthvað sé nefnt. Fjölmörg áhugaverð þróunarverkefni eru í gangi úti í skólunum sem vert er að fylgjast með. Áhersla verður lögð á tengslamyndun fólks sem er að þreifa sig áfram með nýtingu nýrrar tækni og miðla í skólastarfi.
Meginmarkmið menntabúða er að:
a) skapa jafningjaumhverfi þar sem miðlun þekkingar og reynslu á sér stað
b) veita þátttakendum tækifæri til að læra og prófa sig áfram með ýmis áhugaverð viðfangsefni
c) stuðla að tengslamyndun og samvinnu fólks sem er að þreifa sig áfram með nýtingu nýrrar tækni og miðla í skólastarfi.
Eins og fyrirsögnin gefur til kynna verður aðaláhersla þessara menntabúða MOOC og Moodle en að sjálfsögðu er opið fyrir önnur framlög. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í hvert skipti til að auðvelda utanumhald og skipulagningu. Smelltu á dagsetningarnar hér fyrir ofan til að skrá þig.
Þátttakendur eru beðnir að koma með framlag í búðirnar en ekki er ætlast til að allir komi með innlegg. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námsskrárvinnu, eða að varpa fram spurningum. Tryggt verður að nóg áhugavert efni verði til reiðu. Þátttakendur eru hvattir til að koma með fartæki (fartölvu, spjaldtölvu, snjallsíma,...) með sér og hægt verður að tengjast neti.
#menntabudir
Twitter-og facebookmerking
#menntabudir
Twitter-og facebookmerking
#menntabudir
Twitter-og facebookmerking
Samstarfsaðilar Menntabúða
Fagaðilar og framhaldsnemar í upplýsingatækni og miðlun, Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun (RANNUM)
Event Information
Múkk og Múður Menntabúðir (MOOC og Moodle)
For more information, visit the event page on Facebook.
When?
Tuesday, Feb 25, 2014, 04:00 PM
Where?
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið, við Stakkahlíð, Reykjavík, Iceland
UT-torg
UT-torg samstarfsfélög um UT í námi og kennslu.
Email: uppltorg@gmail.com
Website: http://uttorg.menntamidja.is/
Facebook: https://www.facebook.com/pages/UT-torg/173085796204552?fref=ts
Twitter: @UT_torg