Húsasmíði
Fyrir nemendur í dagskóla sem fara á 3. önn vorið 2024
Til nemenda
Allir nemendur sem ætla að stunda nám við skólann á vortönn 2024 verða að velja áfanga í INNU. Námsframboð er birt með fyrirvara um næga þátttöku í áföngum.
Húsasmíði:
Atvinnuheitið húsasmiður er lögverndað starfsheiti og húsasmíði er löggild iðngrein. Nám á húsasmiðabraut er 240 eininga iðnnám sem lýkur með burtfararprófi á 3. þrepi. Námið undirbýr nemendur undir starf húsasmiða. Í starfi þeirra felst meðal annars að byggja hús og húshluta, sinna viðhaldi bygginga, velja vinnuaðferðir, efni og verfæri og fara eftir kröfum um öryggismál. Í starfi sínu sýna þeir sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og eru meðvitaðir um vandað handverk. Að fengnu prófskírteini sem vottar útskrift af viðkomandi námsbraut og vottorði um að starfsþjálfun sé lokið getur nemandi sótt um að taka sveinspróf sem leiðir til útgáfu sveinsbréfs.
Vinsamlegast veldu í INNU:
- ÁÆST3SC01
- TEIK2HS05
- INNK2HH05
- INNR2HH08
Eftirfarandi bóklegir áfangar eru á brautinni:
DANS2BF05
ENSK2DM05
ÍSLE2BR05
ÍÞRÓ1AL01
ÍÞRÓ1HH01
ÍÞRÓ1HU02
ÍÞRÓ1SÉ01
STÆR2RU05
Menntaskólinn á Ísafirði
Tölvupóstur: misa@misa.is
Heimasíða: www.misa.is
Heimilisfang: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Sími: 450 4400
Fésbókarsíða: https://www.facebook.com/menntaisa/