Vikupistillinn
Tímabilið 14. - 19. október 2019
Heilræði vikunnar
Að vera kona er svo furðulegt, svo flókið og botnlaust, að enginn nema kona getur ráðið við það.
Sören Kierkegaard
Sýnum ábyrgð við notkun síma og annarra snjalltækja
Punktar
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
- Eftir vetrarfrí byrja starfsmannafundir með nýju starfsfólki.
- Muna að skrifa á blaðið við kaffistofuna, hvalaveislurnar ykkar.
- Eftir vetrarfrí hitta stjórnendur kennara í hópum á starfsþróunarfundum.
- Minnum umsjónarkennara á að skoða ástundun nemenda sinna samkvæmt nýju reglunum. Það er hægt að lesa sig til um ástundunina á sameign mappa merkt ástundun.
- Fyrir viðtalsdaginn 30. október þurfa allir kennarar að:
- Vera búnir að meta hluta af hæfniviðmiðum skólaársins þannig að nemendur og foreldrar sjá á hvaða vergferð nemandinn er.
- Skrá umsögn í dagbók nemandans og birta foreldrum. Í umsögninni á að koma fram, hvernig hefur gengið það sem af er skólaárinu bæði námslega, hegðunar- og félagslega. Þetta á að gera í öllum námsgreinum og vera tilbúið mánudaginn 28. október. Munið að þegar þið skráið í dagbók nemenda í Mentor að velja aðgang: umsjónarkennari og stjórnendur.
- Vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði verður undirgöngunum við Þorlákstún/Tjarnarvelli og aðliggjandi stígum lokað mánudaginn 7. október 2019. Sjá nánar.
- Hér má nálgast verkefnaskrá ársins ásamt fundaskipulagi ársins.
Mánudagur 14. október
- Bóka- og bíóvika.
- Miðdeild: Gunnar Helgason rithöfundur kemur á sal skólans kl. 10:00.
- Verið - miðdeild - Skotbolti
- Verið - elsta deild - Fávitar! fræðsla í Áslandsskóla.
Þriðjudagur 15. október
- Samvera í umsjón 6. HÁ.
- Heimanám á vegum Rauða krossins er á bókasafninu frá kl. 13:30 - 15:00. Hvetjum nemendur til að nýta þennan tíma.
- Á fundartíma höfum við gaman saman - nánar auglýst síðar.
Miðvikudagur 16. október
- Samvera í umsjón 3. EG.
- Fundur í lausnateymi Brúarinnar kl. 14:05 - 15:00 inni á fundarherbergi.
- Verið - miðdeild - Ævintýraleikur Snúlla.
- Verið - elsta deild - Minite to win it.
Fimmtudagur 17. október
- Kl 9:00 kemur skólahópur frá Vesturkoti í heimsókn til skólahjúkrunarfræðings.
- Skólastjórnendafundur kl. 9:00.
- Fundur hjá eineltisteyminu kl. 14:00 - 15:00, inni hjá námsráðgjafa.
- Á fundartíma eru teymisfundir B.
Föstudagur 18. október
- Starfsdagur sem margir eru búnir að vinna af sér en þeir sem vinna mæta kl. 8:20.
- Verið - miðdeild - Lip sync battle.
- Verið - elsta deild - bíókvöld
Olweus - nemendaviðtöl
Hér má finna nemendaviðalseyðublöðin:
Aðgangur grunnskóla Hafnarfjarðar að Snöru
Aðgangur hefur verið stofnaður að Snöru fyrir grunnskóla Hafnarfjarðar. Aðgangurinn er fyrir starfsmenn og nemendur og hugsað til nota í kennslunni eins og þarf.
Fréttir frá Bjargi
Londrit Avdulahi í 7. SA og Bjargi er fluttur aftur til Serbíu.
Fiðrildi eru falleg
Fallegar myndir af fiðrildum eftir nemendur í 2. bekk.
Leikstjórar
Steinar og Guðrún Árný kynna Leikstjóraverkefnið.
4. MI - Göngum í skólann
Nemendur í 4. MI og 7.SL voru duglegust að koma gangandi eða hjólandi í skólann.
Grunnlitablöndun
Grunnlitablöndun hjá nemendum í 1. bekk í myndmennt.
Goðheimar
Líttu við á bókasafninu, þar er hægt að fræðast um Goðheimana.
7. SL - Göngum í skólann
Nemendur í 7. SL voru hlutfallslega duglegust að ganga í skólann þessar vikur.
Tiltekt vikunnar
Við biðjum nemendur í 9. MK undir stjórn Margrétar umsjónarkennara að taka til á skólalóðinni.
Afmælisdagar í október
Bragi á afmæli þann 15. október. Við óskum honum innlega til hamingju með afmælið :-)
Á döfinni
- Október er bleikur og mánuður myndlistar.
- Vetrarfrí 21. og 22. október.
- Þann 28. október kemur starfsmaður aðþjóðasviðs RKÍ í heimsókn til nemenda í valgreininni Stríð og friður.
- Námsviðtöl 30. október.
- Nemendur í 6. bekk eru Logos skimaðir í október og nóvember.
- Í október og nóvember eru nemendur í 1. bekk framburðarskimaðir og einnig lesskimaðir.
- Lestarátak.
- Vinavika og fjölgreindaleikar í byrjun nóvember.
- Fiesta - ball í elstu deild verður 6. nóvember.
- Baráttudagur gegn einelti, 8. nóvember.
- Olweusarkönnun nemenda fer fram í nóvember, nemendur í 5. - 10. bekk.
- Skipulagsdagur 15. nóvember.
- Stóra- og litla upplestrarkeppnir settar.
- Kynfræðsla Siggu Daggar fyrir nemendur í 8. og 10. bekk þann 19. nóvember.
- Sigga Dögg mætir á fund með foreldrum og þeim starfsmönnu sem vilja að kvöldi 19. nóvember.
- Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember.
- Nemendur í 9. bekk fara í Ungmennabúðirnar á Laugarvatni, 18. - 22. nóvember.
- Nemendur í 7. bekk fara í Skólabúðir að Reykjum, 25. - 29. nóvember.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200