Vikupóstur leikskóladeildar
21.-25. mars 2022
Vikan
- Málhljóðið Ö. Leiruðum og skrifuðum stafinn. Skrifuðum bókstafi á bakið á hvoru öðru með fingrunum og reyndum að giska á réttan staf.
- Mikið rætt og lesið um að við erum öll eins og við erum og það gerir okkur einstök. Við erum öll manneskjur með tilfinningar og viljum öll að aðrir séu góðir við okkur og að við tilheyrum hópnum. Orðin umhyggja og virðing voru mikið notuð. Við höldum þessari vinnu áfram allavega fram að páskum og lestrarstundir, stofufundir og samverur fara í þetta.
- Erum byrjuð að gera alls kyns páskaskraut.
- Lærðum skottaleik í íþróttum.
- Fórum með strætó á leikvöll í Hæðahverfinu og náðum að stoppa í nokkra stund.
Skammta sér grænmeti og ávexti.
Skrifa bókstafi á bakið.
Hversu lengi stendur turninn?
Næsta vika
- Alexander Thor bætist í hópinn okkar í næstu viku. Við ætlum að taka vel á móti honum.
- Miðvikudaginn 30. mars fer 2016 árgangurinn á kynninguna Hvað er sýning? á Ljósmyndasafninu í Reykjavík. 2017 árgangurinn fer í Ráðhús Reykjavíkur sama dag.
- Flatóvisjón verður svo á miðvikudaginn eftir hádegi og við látum okkur ekki vanta þar.
Hlý kveðja,
Herdís, Marley, Helen og Linda
Leikskóladeild Flataskóla
Email: flataskoli@flataskoli.is
Website: https://4og5ara.flataskoli.is/
Phone: 617-1573