Vorblót og menntabúðir í Reykjavík
Fimmtudagur 26. apríl #menntaspjall
Staðsetning: Borgartúni 12-14, 7. hæð
Hvenær: Fimmtudaginn 26. apríl kl. 15-17:30
Vorblót menningartengiliða og alls áhugafólks um listir, vísindi og fjölbreytta kennsluhætti með menntabúðum í upplýsingatækni fyrir leikskóla.
Menningartengiliðum og öðrum áhugasömum gestum gefst tækifæri til að fá yfirsýn yfir fjölbreytta möguleika sem þeir geta nýtt í eigin vinnu og miðlað til áhugasamra á sínum starfsvettvangi.
Boðið verður upp á fjölbreyttar stöðvar og kynningar með ýmsu af því sem er að gerast í skapandi skóla- og frístundastarfi með börnum og ungmennum (allir aldurshópar).
Viðfangsefni Vorblóts
Smiðjur og erindi - í Kerhólum og Hofi
- Danssmiðjur
- Sirkus
- Reykjavík – borgin okkar
- Vísindaleikir
- Snjöll tónlist
- Gagnvirkir ratleikir
- Costner - Kafteininn, Fróði, Málfarinn og Prím
- Kynning Listaháskóla Íslands
- Google Expedition með VR gleraugum
- Google Tilt Brush með HTC Vive
- QR-kóðar
- Green screen
- Forritanleg smátæki og snjalltæki í vísindavinnu
- Forritanleg smátæki, Beebot, margfætlan, músin, Osmo, Virtuali-Tee og fleira
Menntabúðir í upplýsingatækni - í matsal
- Fikt - Námsvefur um upplýsingatækni fyrir kennara í leikskóla og á yngsta stigi grunnskóla - Fjóla Þorvaldsdóttir, sérkennari leikskólanum Álfaheiði
- Quiver - Smáforrit þar sem teikningar lifna við í gagnauknum veruleika - Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, UT kennslufulltrúi
- Tiny Bop - Smáforrit fyrir náttúrufræðikennslu - Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, UT kennslufulltrúi
- Ýmis UT tæki og tól sem henta í námi og kennslu - Sunneva Svavarsdóttir, leikskólinn Reynisholt
- Seesaw - rafræn ferilbók, samskipti heimilis og skóla. Bergþóra Þórhallsdóttir, Deildarstjóri Kópavogsskóla
- Barn vikunnar - Guðrún Þorleifsdóttir, deildarstjóri leikskólanum Nóaborg.
- ...
Samstarfsaðilar: Upplýsingatæknitorg, Listaháskóli Íslands, Menntavísindasvið HÍ, RANNUM, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.
Menntabúðir - Upplýsingatækni í leikskólastarfi Borgartúni 12-14 7. hæð
Thursday, Apr 26, 2018, 03:00 PM
Borgartún 12-14, Reykjavík, Iceland
UT-torg
Email: bjarjons@gmail.com
Website: http://uttorg.menntamidja.is/
Phone: 8630535
Facebook: https://www.facebook.com/upplysingataeknitorg/?ref=bookmarks
Twitter: @UT_torg
Hvað eru menntabúðir?
Menntabúðir (e. EduCamp) er starfsþróun á jafningjagrundvelli. Aðferðin byggir á óformlegri jafningjafræðslu sem stuðlar að aukinni umræðu á milli skólastiga sem og eflingu tengslanets kennara. Þátttakendur miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum. Menntabúðir eru opnar öllum en sérstaklega miðaðar að starfandi kennurum á öllum skólastigum sem og kennaranemum.
Dagskráin sem er í mótun mun birtast hér á síðunni jafnóðum. Þess vegna er gott að kíkja hérna við daglega fram að menntabúðunum.
Athugið að þó þessar menntabúðir í upplýsingatækni séu sérstaklega hugsaðar fyrir leikskólastigið verður margt áhugavert á döfinni sem hentar kennurum á yngsta stigi grunnskólans. Á sama tíma verðurr einnig haldið vorblót fyrir menningar- og listatengilið í leik- og grunnskólum með fjölbreyttu framboði af fræðslu.
Þátttakendur geta mætt með umfjöllunarefni sem þeir brenna fyrir eða hafa áhuga á, en einng hefur verið vinsælt að koma með "vandamál" og fá aðstoð við að leysa það.
Þátttakendur eru beðnir um að koma með framlag í búðirnar. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námskrárvinnu, varpa fram spurningu eða koma með eitthvað málefni sem þarfnast lausnar.
Ekki er ætlast til að allir komi með framlag. Þátttaka er ókeypis en gert er ráð fyrir virkri þátttöku. Með virkri þátttöku er átt við að ganga á milli stöðva, spjalla og spyrja spurninga. #menntabudir #menntastefna
Hlökkum til að sjá ykkur!!