Föstudagspóstur 20. mars 2020
4. og 5. bekkur
Fréttir úr skólastarfinu
Þá er sögulegri viku í skólanum lokið. Við í Naustaskóla erum að vinna við aðstæður sem eru mjög langt frá okkar venjubundna skólastarfi. Krakkarnir hafa orð á því að þetta sé eins og að vera í útlenskum skóla.
Allt skólasamfélagið, nemendur, starfsfólk og foreldrar hafa sannarlega staðið sig með mikilli prýði í þessum snúnu aðstæðum og allir hafa lagst á eitt til að láta hlutina ganga. Börnin ykkar taka þessum breytingum með miklu æðruleysi, vanda sig að fara eftir fyrirmælum og eru orðin mjög fróð um handþvott.
Við höfum fylgt námsáætlunum í stærðfræði og íslensku, en að öðru leyti leggjum við áherslu á hreyfingu í íþróttahúsi og útiveru og leik eftir því sem aðstæður leyfa.
Heimasíða Akureyrarbæjar
Öðruvísi Naustaskóli
Góða helgi og takk fyrir vikuna
Aníta, Róbert, Gréta, Sigmundur, Þóra, Fannar, Kristín og Atli
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718/