Vikupóstur
Vikan 17.- 28. febrúar
Kæra samstarfsfólk
Við viljum hrósa ykkur fyrir sveigjanleika og mikla jákvæðni síðustu vikurnar. Það hafa verið mikil veikindi hjá starfsfólki og börnum þeirra og hafa allir leyst þau vandamál sem upp hafa komið með mikilli fagmennsku og ró.
Upplestrarkeppnin í 7. bekk er næsta mánudag klukkan 8:30. Við viljum biðja öll teymi um að sjá til þess að nemendur gangi hljóðlega um þennan dag til þess að trufla ekki upplesturinn.
Á mánudaginn næsta koma tveir danskir kennaranemar þau Jeppe og Mette og verða þau hjá okkur næstu 6 vikurnar. Þau verða í 6.-7.bekk hjá Örnu Ýr. En næsta vika fer í áhorf hjá þeim. Takið vel á móti þeim J
Það er bæði réttindaráðsfundur UNICEF í næstu viku og nemendaráðsfundur. Heimir mun senda út fundarboð til kennara varðani þessa fundi.
Það verður konudagskræsingakaffi föstudaginn 21. febrúar. Stjórnendateymið og eldhúsið mun bjóða upp á flotta veislu J
Í vetrarfrísvikunni munu kennara- og teymisfundir falla niður.
Góða helgi!
Bryndís, Alla og Heimir.
Mánudagur 17. febrúar
Undankeppni stóru upplestrarkeppninnar 7. bekkur á sal skólans. Kl.8:30
Leyfi: Anna Margrét
Þriðjudagur 18. febrúar
Stjórnendafundur kl. 8:30 – 9:10
Kennarafundur 14:45 á svæði 4.-5. bekk: Skóladagatal, umræða um námsmat.
Leyfi: Þóra og Stína á námskeiði í HA kl. 12:30
Miðvikudagur 19. febrúar
Foreldrasýning í dansi hjá 2. - 3. bekkur í íþróttasal.
Skólaliðafundur klukkan 9:00.
Bryndís á skólastjórafundi kl. 8-10
Leyfi:
Fimmtudagur 20. febrúar
Fræðsla fyrir 2. bekk „Krakkarnir í hverfinu“. Kl. 8:10 – 8:50
Nemdaverndarráðsfundur kl. 9:00 – 10:00
Skólaráðsfundur kl:15
9. bekkur í heimsók í VMA
Leyfi: Silvía
Föstudagur 21. febrúar
Stjórnendafundur kl. 8:30 – 9:30
Réttindaráðs fundur UNICEF klukkan 10:30 í stóra fundarherbergi
Konudags 23. febrúar 😊 Kræsingarkaffi í boði stjórnunarálmu og eldhús
Starfsmannafundur kl. 13:20 ADHD fræðsla seinni hluti
Leyfi:
Mánudagur 24. febrúar
Kennara- og teymisfundir falla niður í þessari viku
Bolludagur – Bollur í boði skólans fyrir starfsfólk
Nemendaráðsfundur klukkan 9:00 í stóra fundarherberginu
Leyfi: Bryndís, Elsa, Erla og Hulda
Þriðjudagurinn 25. febrúar
Sprengidagur
Leyfi: Bryndís, Elsa, Hulda og Gudda
Miðvikudagurinn 26. febrúar
Vetrarleyfi – Frístund opin eftir klukkan 13:00
Leyfi: Bryndís, Heimir, Elsa, Sandra, Inga Vala, Harpa M, Gudda, Heiða
Fimmtudagur 27. febrúar
Vetrarleyfi - Frístund opin eftir klukkan 13:00
Leyfi: Bryndís, Elsa, Harpa M, Sunna, Inga Vala og Heiða
Föstudagur 28. febrúar
Vetrarleyfi - Frístund opin eftir klukkan 13:00
Leyfi: Elsa, Emilía, Erla, Harpa M, Sunna, Inga Vala og Heiða