HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 26. TBL
DAGSKRÁ 27. MARS - 2. APRÍL
MÁNUDAGUR 27. MARS
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS
Marita fræðsla fyrir 5. og 10.bekk og foreldrafundir seinnipartinn
MIÐVIKUDAGUR 29.MARS
Marita fræðsla fyrir 7. -9. bekk
Fagfundir: stærðfræði
Deildarfundir í báðum húsum kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 30. MARS
Stóra upplestrarkeppnin, lokakeppni suðurlands haldin í Eldheimum kl. 11:30
Stjórnendafundur í HS
FÖSTUDAGUR 31. MARS
Takk fyrir vikuna og góða helgi
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Mottumars er hafinn
- 28. mars: Maríta fræðsla. 5. bekkur og foreldrar í Hs. kl. 12:00. 10.bekkur í Bs kl. 9:00. Foreldrafundur fyrir 7. -9.bekk kl. 17:00 og fyrir 10.bekk og FÍV kl. 18:30 í sal Bs.
- 29. mars: Maríta fræðsla. 9. bekkur kl. 8:00, 8. bekkur kl. 9:00 og 7. bekkur kl. 10:20.
- 30. mars: Lokakeppni í Stóru upplestarkeppninni haldin í Eldheimum kl. 11:30. Fyrir hönd GRV keppa: Daníel Franz, Bertha Þorsteins og Haukur Helgason, Þóra Björg er varamaður.
- 4. apríl: 10.bekkur í starfskynningu verða ekki í skólanum þann dag.
- 5. - 7. apríl: 10.bekkur í skólaferðalagi
Tilkynningar !!
- Anna Rós ætlar að vera í Hs þriðjudaga frá 13-16 fram að páskum, að aðstoða við námsmat.
- Lesið við sama borð - Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00.
- Áhugaverður vefur: rímorðabók: http://islenska.org/rima/
- Anna Rós erlendis 31. mars og 3. apríl
- 7. apríl: Hugmynd að starfsfólk geri sér glaðan dag eftir vinnu,
Afmælisbörn
Evelyn Bryner 30. mars
Halla Júlía Andersen 1. apríl
Birna Hilmisdóttir 2. apríl
Andasalat með kirsuberjatómötum og granateplum
- 2 stk Vallette andabringur
- 1-2 pokar Frise salat frá Hollt&Gott (eða veislusalat)
- 1 askja kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
- 2-3 skarlottlaukur, skornir í þunnar sneiðar
- 12 pekanhnetur (eða valhnetur)
- 1 granatepli
- Sinneps dressing
- 3 msk ólífuolía
- 2 msk hvítvínsedik
- 1 msk dijon sinnep
- salt og pipar
- Saltið andabringurnar, leggið þær á grillið með fituhliðina niður og snöggbrúnið þær við háan hita í um 2 mínútur á hlið. Setjið þær síðan í álform eða eldfast mót sem þolir að fara á grillið. Setjið andabringurnar á efri hillu á grillinu, lokið því og steikið bringurnar í 10-12 mínútur. Takið af grillinu og leyfið að standa í nokkrar mínútur. Skerið þær því næst í litla munnbita.
- Gerið dressinguna með því að blanda öllum hráefnunum saman og hræra vel.
- Setjið salat, kirsuberjatómata og lauk saman í skál ásamt dressingunni og blandið vel saman.
- Setjið öndina, pekanhnetur og granatepli yfir salatið og berið fram.
Spakmæli vikunnar
"Ef við öll hugsum á sama hátt, þá líklega erum við öll ekki að hugsa mikið"
Pasi Sahlberg
Áhrif vatns á líkamann
Með því að drekka nóg vatn eru meiri líkur að minnið verði betra og þú eigir auðveldara með þrautalausnir.
Áhrif vatns á líkamann
Að drekka nóg vatn getur minnkað andfýlu.
Áhrif vatns á líkamann
Að drekka nóg vatn getur haft áhrif á skapið. Meira vatn = meiri jákvæðni.
Hrós vikunnar fá
Allt starfsfólk GRV fyrir að rétta hjálparhönd við hvort annað við að leysa öll þau ólíku mál sem verða á vegi okkar á hverjum degi. Takk.
Þessi keppa fyrir hönd GRV á Stóru upplestrarkeppninni :)
Íslenska sem annað tungumál - facebook
Mælummeð þessari facebook síðu fyrir kennara sem eru að kenna nýbúum.
GRV - fræðsla á facebook
Endilega fylgjast með á facebook síðunni GRV- fræðsla, þar er alltaf að koma eitthvað fróðlegt og skemmtilegt inn.
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.
Heilsuhópur GRV
Stofnuð hefur verið síða á facebook sem heitir heilsuhópur GRV.
Hver á ? Fannst á árshátíðinni, er hjá Önnu Rós
Týndur "veflampi"
Hefur einhver séð bláa vefmyndavél sem lýtur út eins og lampi ? Hún finnst ekki.