Föstudagspóstur
1. bekkur
Kæru foreldrar
Nokkrir fengu að spreyta sig á því að standa fyrir framan samnemendur sína og segja frá hvaða þorramat þau hafa smakkað og hvernig þeim fannst. Hákarlinn var vinsælastur!
Í næstu viku munum við halda áfram að æfa okkur að "koma fram" og hlusta á aðra.
Í stærðfræði einbeittum við okkur að samlagningu, tug og einingu og kynntust börnin líka táknunum > < og að oddurinn bendir alltaf á minni töluna.
Í síðustu viku fórum við af stað með "störfin í bekknum" (ávaxtaverðir, raðarverðir og umsjónarmenn) og það er svo gaman að sjá hvað börnunum finnst þau spennandi og taka þessu alvarlega. Allir fá að sinna hverju hlutverki allavega einu sinni.
Ávaxtaverðir bjóða ávexti, þurrka af borðum og skila ávaxtavagninum. Raðarverðir sjá til þess að allir snúi rétt í röð og leiða svo röðina á áfangastað. Umsjónarmenn fara yfir svæðið í lok dags og sjá til þess að allir gangi frá eftir sig.
Við minnum á skráningu í foreldraviðtölin á mentor, en þau verða á mánudag og þriðjudag í næstu viku og verður engin kennsla þessa daga. Frístund verður opin.
Njótið helgarinnar!
Bestu kveðjur,
Elín, Jódý, Sigga og Sunna
Sóknarskrift úr Kuggur - Þorrablót
Alltaf gaman að breyta til!
Námsmöppur
Endilega skoðið verkefnin með ykkar barni og ræðið námið út frá þeim.