Vikupistillinn
Tímabilið 21. - 27. janúar 2019
Heilræði vikunnar
"Í öllum verkum skal undirbúning vanda
áður en hafist er handa."
Cicero
Punktar
- Munum eftir að leggja inn HÆTTU, GAKkTU, SEGÐU FRÁ, sjá Stöndum saman lesefni, kynning frá starfsmannafundi. Það má einnig nálgast í SMT möppunni. Stjórnendur mun koma í stofur með blað til að hengja upp í öllum heimastofum.
- Muna að skila vikuáætlunum inn á sameign í möppuna „Áætlanir/Vikuáætlanir“.
- Lestrarátak Ævars vísindamanns er frá 1. janúar til 1. mars fyrir nemendur í 1. - 10. bekk.
- SMT veggur við kaffistofuna. Umsjónarkennarar eru beðnir um að setja inn hvalaveislurnar á blaðið á veggnum. Nokkrir umsjónarkennarar eiga eftir að setja inn sínar veislur.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu nemandans.
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
Mánudagur 21. janúar
- Ný önn hefst og valgreinar vorannar hjá nemendum elstu deildar hefjast.
- Verið - elsta deild - opið hús.
Þriðjudagurinn 22. janúar
- Söngsamvera hjá miðdeild.
- Kl. 12:40 fá nemendur í 9. MS geðfræðslu frá Hugrúnu, geðfræðslufélagi í sinni heimastofu.
- Jón Ragnar Jónsson kemur með forvarnarfræðslu fyrir nemendur í 8. bekk. Kl. 12:40 til nemenda í 8. MK í heimastofu og kl. 13:20 til nemenda í 8. GRB í heimastofu.
- Kennarar vinna að námsmati á fundartíma.
Miðvikudagur 23. janúar
- Söngsamvera hjá yngri deild.
- Fundur með almennum starfsmönnum kl. 11:25 í fundarherbergi inn af bókasafni.
- Fundur í nemendaverndarráði kl. 13:15 í litla fundarherberginu.
- Síðustu skil mati á hæfniviðmiðum og framvindu (5. - 10. bekkur).
- Verið - miðdeild - skotbolti.
- Verið - elsta deild - Söngkeppni Hafnarfjarðar.
Fimmtudagurinn 24. janúar
- Kennarar vinna að undirbúningi námsviðtala á fundartíma.
Föstudagur 25. janúar
- Fundur hjá eineltisteyminu kl. 13:20 hjá námsráðgjafa.
- Skákdagurinn er 26. janúar. Að því tilefni höldum við upp á daginn með því að hafa skákmót í matartímum nemenda.
- Leikstjórar í yngri og miðdeild fara í klifurdeildina hjá Björk, og verða nemendur þar frá kl. 10:00 - 12:00.
- Verið - miðdeild - 7. bekkjakvöld.
- Verið - elsta deild - bíókvöld.
Starfsmannamál
Þau Harpa Bjarnadóttir og Daníel Guðjón verða hjá okkur áfram í næstu viku í forföllum.
Námsmat
- Við minnum á Lesfimiprófin. Munum að það á að prófa alla nemendur og því gott að byrja sem fyrst á prófuninni. Sjá leiðbeiningar hvernig niðurstöður eru settar í Mentor.
- Munum einnig að það á að leggja fyrir nemendur í 3. - 8. bekk lesskilningsprófið Orðarún nú í janúar. Sjá leiðbeiningar hvernig niðurstöður eru settar í Mentor.
- Hér eru leiðbeiningar hvernig prenta á út framvindu-yfirlit.
- Hér má sjá myndband um Hæfnikort - skýrslur.
- Síðustu skil á mati á hæfniviðmiðum og einkunn í framvindu (hjá nemendum 5. - 10. bekk), er í lok dags miðvikudaginn 23. janúar 2019.
Nemendamál
- Rakel Ýr Pálmadóttir byrjaði í Hvaleyarskóla í síðustu viku, og fór í 6. SL.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Frá frímínútum
Mynd tekin hjá rólum yngrideildar.
Matur
Hún bragðaðist vel kjötsúpan sem var í hádegismatnum í dag föstudag.
Tveir öflugir
Hér eru tveir íbyggnir á svipinn :-)
Afmælisdagar í janúar
Björk á afmæli þann 5. janúar, Anna Rós þann 8. janúar, Sif Heiða og Lóa þann 10. janúar, Kolbrún þann 11. janúar, Þórður 12. janúar, Helga Eyja þann 14. janúar, Hilmar Trausti þann 16. janúar, Edda og Elísa þann 20. janúar, Agnes þann 22. janúar, Tinna 24. janúar og Emilía Björg þann 30. janúar. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Á döfinni
- Við erum að vinna að heilsuhorni.
- Kennaraneminn Tinna Líf Baldvinsdóttir sem er á 3. ári, verður hjá Ingu Völu og 3. IVJ frá lok janúar til loka mars.
- Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar verður með fyrirlestur fyrir sérkennara og þroskaþjálfa í fyrirlestarsal skólans þann 28. janúar.
- Viðtalsdagurinn er þriðjudaginn 29. janúar.
- Þann 1. febrúar kl. 14:00 verður fagráðstefna í Flensborgarskólanum þar sem kennarar í völdum greinum elstu deildar hitta fargreinakennara í Flensborgarskólanum. Nánari upplýsingar koma síðar.
Námslotur í InfoMentor
https://www.youtube.com/watch?v=Im_octtkUis
https://youtu.be/Nk9Yu9wx3-Q
https://www.youtube.com/watch?v=18NXars670k
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200