HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 8. TBL
DAGSKRÁ 30. OKT. - 3. NÓV.
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER
Sigurhanna verður með kynningu fyrir HS kennara á Dino-Lite smásjá klukkan 14:00
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER
Fagfundur í náttúrufræði
Deildarfundir í báðum húsum kl. 14:30
Aðalfundur starfsmannafélagsins kl. 15:30 í sal Barnaskólans
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER
Stjórnendafundur í BS klukkan 14:30
FÖSTUDAGUR 3. NÓVBER
Skáld í skólum í Hs fyrir 1. -4. bekk, tímasetning auglýst síðar.
Góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Aðalfundur starfsmannafélags GRV verður 1. nóvember kl. 15:30 í sal Bs.
- Fulltrúar fjölskyldu- og fræðsluráðs ásamt Drífu Gunnarsdóttur fræðslufulltrúa ætla að heimsækja báða skóla 7. nóvember: Barnaskólinn kl. 8:30 - 9:15 og Hamarsskóli kl. 10:00 -10:45.
- Skáld í skólum fyrir yngsta stig föstudaginn 3. nóvember.
- Vinavikan nálgast, verður 6. -10. nóv.
- Margar góðar hugmyndir hafa komið frá nemendum, allir bekkir í Hs sem hafa sent inn hugmyndir óska eftir að hafa náttfata-og kósýdag, einnig eru óskir um ÍBV-dag/búningadag, sokkadag.
- Baráttudagur gegn einelti verður 8. nóv. Vinabekkir fara í heimsóknir á milli skólahúsa þennan dag, nemendur vinna saman verkefni.
- https://mms.is/sites/mms.is/files/hvatningarbrefs_dags_gegn_einelti_2017.pd
- Dagskrá fyrir vinavikuna verður kynnt á næsta fundi.
- Fyrirlestur Vöndu Sigurgeirsdóttur fyrir allt starfsfólk verður í sal Hs miðvikudaginn 15. nóvember frá kl. 13:00 - 16:00. Fyrirhugað er að Vanda verði einnig með fyrirlestur fyrir foreldra þriðjudaginn 14. nóv.
- Skáld í skólum fyrir miðstig og unglingastig 17. nóvember.
- Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember.
- Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember. https://www.mms.is/sites/mms.is/files/dagur_mannrettinda_barna_grunnskolar.pdf
Tilkynningar !!
- Lota no 2 í akademíunni er hafin, stendur yfir frá 18. október til 10. nóvember
- Fríða Hrönn námsráðgjafi bætir við sig viðveru í Hamarsskóla á fimmtudögum kl. 8:00 - 10:00..
- Föndurdagurinn í HS verður 7. desember. Verkefni verða til sýnis í vikunni 13. - 17. nóvember. Við biðjum kennara að senda okkur hugmyndir að verkefnum þ.e.a.s. ef vilji er fyrir því að skipta út verkefnum.
- Nýjar verkgreinalotur hefjast 25. janúar 2018.
- Lestur við sama borð - tvítyngdir nemendur fá aðstoð við heimalestur og heimanám á Bókasafni Vestmannaeyja á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á milli kl. 16:00 og kl. 17:00
Afmælisbörn
Anna Lilja Tómasdóttir 30. október
Íris Huld Gunnarsdóttir 1. nóvember
Unnur Líf Ingadóttir 2. nóvember
Þóra S. Sigurðardóttir 2. nóvember
Jarl Sigurgeirsson 3. nóvember
Smjörsteiktar perur með brie osti og furuhnetum á ruccolabeði
Innihald:
Skolið ruccola og dreifið úr því yfir fat. Ristið furuhneturnar á pönnu (passið að hafa ekki of háan hita svo þær brenni ekki!).
Skerið perurnar í sneiðar og steikið úr smjöri á pönnu. Skerið brieostinn í sneiðar og leggið yfir perurnar á heitri pönnunni.
Þegar brieosturinn byrjar að bráðna eru perurnar teknar af pönnunni og lagðar ofan á ruccolað. Að lokum eru ólívuolía, gróft salt, balsamiksýróp og furuhnetur sett yfir.
Spakmæli vikunnar
Ný tækni er á hverju strái, ný hugsun er það ekki.
- Sir Peter Blake
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.