HÚSBRÉFIÐ
15. ÁRG., 4. TBL 2019
DAGSKRÁ 28. JAN. - 1. FEB.
MÁNUDAGUR 28. JANÚAR
Nemendaverndarráðsfundur í Bs. kl. 14:15
Nýtt val hefst á unglingastigi - nema myndlist.
Muna að skrá sig í Lífshlaupið.
ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR
Nemendaverndarráðsfundur í Hs. kl. 14.15
Deildarfundur á unglingastigi - námsmat.
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR
Heilsudagur - allt starfsfólk. Frábærir fyrirlestrar og kaffi í sal Bs. hefst kl. 14:30.
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR
Stjórnendafundur Hs. kl. 14:00
FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR
Dagur stærðfræðinnar.
Gleymdir þú að skrá þig í Lífshlaupið?
Fara yfir Vinnustund, góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Danssýning FUBAR fyrir 8., 9. og 10. bekk, verður 4. - 6. febrúar.
- Mánudagur 4. feb., í sal: Kl. 9-10 8. ES. kl. 10:20-11:20 hálfur 9. bekkur og kl. 11:20-12:20: hálfur 9. bekkur.
Þriðjudagur 5. feb. í sal: Kl. 8-10 hálfur 10.bekkur, kl. 9-10 hálfur 10. bekkur og kl. 10:20-11:20 8. DGÞ
Miðvikudagur 6. feb. kl. 11:10-12:25 Danssýning í Höllinni (allt unglingastigið).
- Lífshlaupið - landskeppni í hreyfingu, verður ræst í 12. sinn miðvikudaginn 6. febrúar.
- Grunnskólakeppnin frá 6. - 19. febrúar. Búið er að stofna alla bekki inn á heimasíðu Lífshlaupsins.
- Vinnustaðakeppnin stendur frá 6. - 26. febrúar. Liðin verða tilkynnt á mánudaginn.
- Skráning fer fram á kaffistofum skólans. Hvetjum alla til að vera með.
- Þorrablót fyrir 1. - 4. bekk verður..... Kennarar og stuðningsfulltrúar í hverjum árgangi eru beðnir um að undirbúa skemmtiatriði fyrir nemendur :)
- Smiðjudagar á unglingastigi 12. -14. febrúar
- Bæjarstjórnarfundur unga fólksins 15. febrúar.
- Þemadagar á miðstigi 26.-28. febrúar.
- Lestrarátak Ævars vísindamanns byrjaði 1. janúar frekari upplýsingar má finna á bókasöfnum skólans eða á http://www.visindamadur.com/lestraratak
Tilkynningar !!
- Yfirfara Vinnustund vikulega. Gott að gera áður en farið er í helgarfrí.
- Ungt fólk, könnun fyrir 5. -10. bekk 5.-7. febrúar.
- Umferðarfræðsla Benna Kalla fyrir 10. bekk - 15. febrúar kl. 10:30.
- Foreldrafundardagurinn - 19. febrúar.
- Konudagurinn - 24. febrúar.
- Árshátíð starfsfólks GRV - 2. mars.
- Öskudagurinn - 6. mars. Nýtt tungl.
Spakmæli vikunnar
Seigla og þrautseigja er hjá þeim sem hafa þurft að vinna sig í gegnum erfið tímabil
- Gever Tulley
Uppskrift vikunnar
Brauðstangir
Innihald :
Pizzadeig
Hvítlauksolía
Salt
Ostur
Pizzasósa
Parmesan
Pizzakrydd
Aromat
Aðferð:
Ég helti hvítlauksolíu yfir botninn og dreifði úr henni með skeið yfir allt deigið.
Stráði aðeins af grófu salti yfir olíuna, mæli alls ekki með því að nota of mikið.
Síðan notaði ég ostinn sem við áttum heima en það var gouda ostur í sneiðum sem ég setti yfir olíuna og aðeins af rifnum osti yfir, skiptir í raun ekki máli hvaða ostur sé notaður en mér finnst gott af hafa nóg af honum.
Ofan á ostinn setti ég aðeins af Aromati, sem er ekkert nauðsynlegt.
Ég stráði síðan parmesan osti yfir sósuna og aðeins af pizzakryddi.
Þær eru einstakar í handavinnuhittingnum!
Okkar frábæru í handavinnuhittingi skólans eru að gefa 16 Neistahúfur til Neistans, sem er félag hjartveikra barna. Á hverju ári fæðast um 70 börn með hjartagalla. Vikuna 7.-14. febrúar gefur Neistinn öllum börnum sem fæðast á Íslandi rauðar húfur, til að minna á félagið. Að meðaltali fæðast um 100 börn í hverri viku á Íslandi.
GRV fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.