Vikupóstur
1. bekkur
Heil og sæl!
Því var ekki seinna vænna en að byrja að æfa atriði 1.bekkjar í vikunni. Spennandi!
Í byrjendalæsi unnum við með bókina Svona varð ég til og teiknuðu allir myndir af sér frá fæðingu til dagsins í dag og skrifuðu ýmist orð eða setningar um hvernig þau voru sem lítil börn. Börnin æfðu sig í að hljóða og skrifa orð, tóku könnun í tug og einingu, lærðu um súlurit og allir fengu nýjar bækur og lestrarblöð.
Á miðvikudaginn voru nemendaskipti við leikskólann. Þá var 1.bekkur í frjálsum leik í leikskólanum á meðan leikskólabörnin fengu að æfa sig að vera í skóla.
Á mánudaginn byrjaði nýr stuðningsfulltrúi hjá okkur. Hún heitir Rósa og mun hún leysa Jódý okkar af um óákveðinn tíma. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna í 1. bekk.
Frímínútur hafa ekki gengið vel þessa vikuna. Börnin eru að meiða hvort annað, ýta og elta og kemur stór hluti af börnunum inn úr frímínútum í uppnámi. Starfsmenn á útivakt hafa ítrekað látið okkur kennara vita um óæskilega hegðun barnanna í frímínútum og að þau fari ekki eftir tilmælum þeirra. Við höfum rætt frímínúturnar daglega síðustu vikur, en þrátt fyrir það gengur ekkert betur úti. Þetta á ekki að viðgangast. Frímínútur eru til að leika og hafa gaman með skólafélögum. Við biðlum til ykkar foreldra að ræða frímínúturnar heima. Hjálpa okkur að koma börnunum í skilning um það að þessir leikir séu ekki í boði og að þeir geti hreinlega verið hættulegir.
Annars vonum við að allir eigi góða helgi og njóti hennar.
Bestu kveðjur,
Elín, Rósa, Sigga og Sunna
Upplýsingar um hæð barna
Útivistardagur 17. mars
Nánari upplýsingar má lesa í fréttabréfi skólans https://www.smore.com/0p2vr-fr-ttabr-f-naustask-la