Vikubréf 2. bekkur
7.-11. mars 2016
Í byrjendalæsi tókum við fyrir bókina Leynifélagið Skúmur unnum ýmis verkefni. Lykilorðið var peningaveski.
Viðfangsefnin í stærðfræði voru tvöfalt meira og helmingi minna, sléttar tölur og oddatölur. Þemaverkefnið um Líkamann heldur áfram og höfum við fjallað um beinagrindina. Í útikennslu fórum við í Hólavallagarð og skiptum hópnum í fernt og bjuggu hóparnir til hver sínar beinagrindur. Sjá myndir.
Í tölvum kynntum við Word-forritið fyrir börnunum þar sem þau voru að leika sér að skrifa texta og setja inn myndir. Þetta fannst þeim skemmtilegt.
Kínverska
Anna kínverksukennari kemur til okkar á þriðjudögum og hafa börnin mjög gaman að því. Hún syngur með þeim og þau fara í leiki.